Hoppa yfir valmynd
3. desember 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vegna upplýsinga úr skattaskjólum

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur undanfarið skoðað hvort þörf sé á að treysta og skýra betur valdheimildir skattyfirvalda og annarra stjórnvalda til að sporna gegn skattundanskoti og skattsvikum. Tilefnið er m.a. að skattrannsóknarstjóra voru boðnar upplýsingar til kaups fyrr á árinu um aflandsfélög skráð í eigu Íslendinga í þekktum skattaskjólum.

Ráðuneytið hefur komist að þeirri niðurstöðu að skattrannsóknarstjóri hafi sjálfstæða skyldu til að leggja mat á virði eða mikilvægi gagnanna fyrir þau verkefni sem embættið sinnir. Gengið er út frá því að sama gildi hér og um aðra ríkisaðila að ekki verði gerðir samningar við aðra en þá sem til þess eru bærir, enda hefur ekki annað komið fram en að gögnin séu föl frá slíkum aðila. 

Meti skattrannsóknarstjóri það svo að gögnin geti nýst embættinu við úrlausn mála sem það sinnir og að mögulegt sé að skilyrða greiðslu til seljanda gagnanna þannig að þær nemi að hámarki tilteknu hlutfalli af innheimtu þeirra skattkrafna sem af gögnunum leiðir er ráðuneytið reiðubúið að tryggja þær fjárheimildir sem nauðsynlegar eru til að ráðast í öflun umræddra gagna, með eðlilegum fyrirvörum um samráð áður en til skuldbindinga er gengið.

Þá hefur fjármála- og efnahagsráðherra tekið ákvörðun um að skipa starfshóp sem mun skoða hvort ástæða sé til að taka upp svokölluð „Amnesty“ ákvæði í íslensk skattalög, svipað og gert hefur verið í nágrannalöndunum okkar. Hópurinn mun jafnframt leggja mat á það hvort lagaheimildir skattyfirvalda til öflunar upplýsinga í baráttunni gegn skattsvikum séu fullnægjandi. Hópurinn skilar niðurstöðum til ráðherra eigi síðar en 15.febrúar 2015.

Í starfshópnum sitja:

  • Ása Ögmundsdóttir, lögfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti, formaður.
  • Guðrún Jenný Jónsdóttir, lögfræðingur, tilnefnd af ríkisskattstjóra,
  • Lísa K. Yoder, lögfræðingur, tilnefnd af skattrannsóknarstjóra og
  • Guðni Ólafsson, viðskiptafræðingur, tilnefndur af tollstjóra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum