Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Bætt eiginfjár- og skuldastaða 56 þúsund heimila

Forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra, ásamt verkefnisstjórn um höfuðstólsleiðréttingu, kynntu í dag niðurstöður skuldaleiðréttingarinnar á fundi í Hörpu. 

Aðgerðin vegur þyngst fyrir fólk undir meðaltekjum, sem var innan við fertugt við hrun, á lítið eigið fé í húsnæði sínu og skuldar á bilinu 15 til 30 milljónir króna.  

Verður lánum skipt upp í tvo hluta, frum- og leiðréttingarlán, og mun skuldari einungis greiða af frumláni frá og með uppskiptingu lánsins. 

Leiðréttingin lækkar höfuðstól íbúðalána um 150 milljarða króna á næstu 3 árum og við fullnýtingu leiðréttingar lækkar höfuðstóll íbúðalána um allt að 20%. 

Með beinu  og óbeinu framlagi ríkisins er öll verðbólga umfram 4% á árunum 2008-2009 leiðrétt til fulls. Eiginfjárstaða 56.000 heimila styrkist með beinum hætti og um 2500 heimili færast úr því að eiga ekkert eigið fé í fasteign sinni yfir í jákvæða eiginfjárstöðu.

Fjármögnunartími aðgerðanna verður styttur úr þremur árum í eitt. Það tryggir betri nýtingu fjármuna  sem ella hefðu farið í vaxtagreiðslur til fjármálastofnana og gerir stjórnvöldum kleift að greiða hærri fjárhæðir inn á höfuðstól lána. Verða 40 milljarðar greiddir inn á leiðréttingarlánin á þessu ári, 20 milljarðar í upphafi næsta árs og 20 milljarðar í byrjun árs 2016.

Leiðréttingin styrkir þannig forsendur frekari hagvaxtar og léttir skuldabyrði heimilanna. Öflugur hagvöxtur og lítil verðbólga getur stutt frekar við eiginfjárstöðu íslenskra heimila á næstu misserum. 

Inngreiðslur séreignarsparnaðar á höfuðstól hefjast um næstu mánaðamót og höfuðstólslækkun með leiðréttingarleið eftir staðfestingu skuldara í desember. Hver og einn getur kynnt sér niðurstöðu höfuðstólslækkunar lána sinna á leidretting.is frá og með 11. nóvember. 

Kynning á niðurstöðu leiðréttingar (PDF)

Útreikningur og samþykkt leiðréttingar (myndband)

Leiðrétting.is


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum