Hoppa yfir valmynd
4. september 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Rafræn skilríki greiða fyrir framkvæmd skuldaleiðréttingarinnar

Ákveðið hefur verið að nýta rafræn skilríki til undirritunar á ráðstöfun leiðréttingarfjárhæðar í tengslum við aðgerðir stjórnvalda um leiðréttingu verðtryggðra fasteignalána. Nú þegar eru hátt í 100 þúsund manns með virk rafræn skilríki og hafa símafélög lýst því að þau verða reiðubúin með lausnir fyrir viðskiptavini sína. Enginn eða óverulegur kostnaður hlýst af því fyrir einstaklinga að útvega sér slík skilríki og verður þeirra ekki þörf fyrr en að loknum útreikningi.

Ákvörðun um nýtingu rafrænna skilríkja er tekin til að tryggja öryggi umsækjenda og efla örugg rafræn viðskipti á Íslandi. Skilríki eru fáanleg á öllum farsímum og kortum. Þau eru þægileg og einföld í notkun, einungis þarf eitt 4-8 stafa númer. Það þýðir að ekki þarf lengur að muna mörg notendanöfn og misflókin lykilorð, sem eykur þægindi notenda. 

Rafræn skilríki veita aðgang að vel á annað hundrað síðum og eru þau einu rafrænu auðkennin sem hægt er að nýta til fullgildrar undirritunar.  Stefnt er að stóraukinni notkun rafrænna skilríkja og að þau verði meginauðkenningarleið fólks vegna ýmiss konar rafrænnar þjónustu og viðskipta á netinu.

Skilríkin verður hægt að nálgast hjá símafélögum, viðskiptabönkum, sparisjóðum og Auðkenni sem býður lausn fyrir þá sem kjósa að vera ekki með rafræn skilríki á farsíma eða korti.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum