Hoppa yfir valmynd
28. júlí 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Álagning opinberra gjalda á einstaklinga 2014

Ríkisskattstjóri hefur nú lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga. Álagningin 2014 tekur mið af tekjum einstaklinga árið 2013 og eignum þeirra í lok árs 2013.

Helstu niðurstöður álagningarinnar eru eftirfarandi:

  • Framteljendum fjölgar um 1,1% milli ára og eru 268.452. Alls fengu 163.862 einstaklingar álagðan almennan tekjuskatt og 256.689 fengu álagt útsvar.
  • Tekjuskatts- og útsvarsstofn landsmanna árið 2014 vegna tekna árið 2013 nemur 988 ma.kr. og hefur hækkað um 6% frá fyrra ári.
  • Samanlögð álagning almenns tekjuskatts og útsvars nemur 260,7 ma.kr. og hækkar um 7% milli ára.  Álagður tekjuskattur nemur 43% af heildarfjárhæðinni og álagt útsvar 57%.
  • Almennur tekjuskattur nemur 112,7 ma.kr. og er lagður á tæplega 164 þúsund framteljendur. Álagningin hækkar um 8% milli ára og gjaldendum fjölgar um 3,4%.
  • Útsvarstekjur sveitarfélaga nema 148 ma.kr. sem er 6,3% aukning milli ára. Greiðendur útsvars eru tæplega 257 þúsund og fjölgaði um 1,2% frá fyrra ári. Ríkissjóður greiðir hluta útsvarsins í formi ónýtts persónuafsláttar vegna þeirra sem hafa tekjur undir skattleysismörkum. Sú fjárhæð nemur 10,4 milljörðum króna.
  • Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga nemur 14,5 ma.kr. og hækkar um 23,7% milli ára. Rétt er að vekja athygli á því að breytingin milli ára er mjög mismunandi eftir tegundum fjármagnstekna. Gjaldendum fjármagnstekjuskatts fjölgar um 8% og eru þeir um 45 þúsund.
  • Vaxtatekjur eru stærsti einstaki liður fjármagnstekna og nema 31,1 ma.kr. sem er 2,2% aukning frá árinu áður. Tekjur af arði nema 19,2 ma.kr. sem er 14,7% aukning frá fyrra ári og leigutekjur nema 9 ma.kr. sem er 1,6% lækkun milli ára. Þrátt fyrir þessa lækkun fjölgar þeim sem telja fram leigutekjur um 4,4% eða rúmlega 300 manns milli ára.
  • Tekjur af söluhagnaði hækka hins vegar langmest milli áranna 2012 og 2013, eða úr 8,6 ma.kr. í 19,2 ma.kr., sem svarar til 124,3% aukningar. Þá rúmlega tvöfaldast fjöldi þeirra sem telja fram söluhagnað af hlutabréfum, eða úr 1.737 einstaklingum í 3.514 einstaklinga.
  • Álagning auðlegðarskatts fer nú fram í síðasta sinn, en skatturinn var lagður á sem tímabundin aðgerð. Skatthlutfallið er 1,5% af eign á bilinu 75-150 milljónir hjá einhleypum og 100-200 milljónir hjá hjónum en 2,0% af eign umfram þessi mörk. Auðlegðarskatt greiða nú 6.534 aðilar, alls um 6,2 ma.kr., sem er 10,4% hækkun milli ára. Viðbótarauðlegðarskattur á hlutabréfaeign er lagður á 5.735 gjaldendur, samtals 4,7 ma.kr. sem er 35,3% aukning milli ára. Samanlagt hækkar auðlegðarskattur um 20% milli ára.
  • Framtaldar eignir heimilannanámu 3.989 ma.kr. í lok síðasta árs og jukust um 3,3% frá fyrra ári. Fasteignir töldust 2.805 ma.kr. að verðmæti, eða 70% af eignum, og jókst verðmæti þeirra um 4,7% milli ára. Íbúðareigendum fækkar hins vegar lítillega milli ára.
  • Framtaldar skuldir heimilanna námu 1.788 ma.kr. í árslok 2013 og standa nánast í stað frá fyrra ári. Framtaldar skuldir vegna íbúðarkaupa námu 1.174 ma.kr. sem er 1,3% aukning milli ára. Eigið fé heimila í fasteign sinni er nú í heild um 58% af verðmæti þeirra m.v. árslok 2013 samanborið við 49% í árslok 2010 þegar það var lægst. Tæplega 26 þúsund af 94 þúsund fjölskyldum sem eiga íbúðarhúsnæði telja ekki fram neinar skuldir vegna þess.
  • Nettóeignir heimila, skilgreindar sem heildareignir að frádregnum heildarskuldum, jukust um 6,1% á árinu 2013.
  • Útvarpsgjald nemur samtals 3,6 ma.kr. á árinu 2014. Fjárhæð þess er 19.400 kr. á hvern framteljanda á aldrinum 16–69 ára sem greiðir tekjuskatt. Greiðendum útvarpsgjalds fjölgar um 2.536 milli ára. Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra nemur samtals 1,8 ma.kr. og eru greiðendur þess þeir sömu og greiða útvarpsgjald.
  • Barnabætur nema 9,5 ma.kr. á þessu ári og lækka nokkuð milli ára þegar á heildina er litið eftir 35% hækkun þeirra milli áranna 2012 og 2013. Barnabætur eru þó mun hærri en á árunum 2011-2012. Tæplega 54 þúsund fjölskyldur fá barnabætur sem er 5,6% fækkun frá fyrra ári. Meðalfjárhæð barnabóta á fjölskyldu stendur því sem næst í stað milli áranna 2013 og 2014.
  • Almennar vaxtabætur vegna vaxtagjalda af lánum til kaupa á íbúðarhúsnæði, sem einstaklingar greiddu af á árinu 2013, nema 8 ma.kr. sem er 8,4% lækkun milli ára. Almennar vaxtabætur fá tæplega 42 þúsund fjölskyldur og fækkar þeim um 6,6% frá fyrra ári. Lækkunin skýrist einkum af hækkun tekna og raunlækkun íbúðarskulda, sem hvort tveggja skerðir bæturnar, en einnig var tekjuskerðingarhlutfallið hækkað úr 8% í 8,5% til að beina bótunum betur að tekjulægri heimilum.
  • Stærsti hluti álagðra gjalda hefur þegar verið innheimtur í staðgreiðslu. Við álagningu fer fram uppgjör á ofgreiddri eða vangreiddri staðgreiðslu auk ákvörðunar á barnabótum og/eða vaxtabótum.
  • Hinn 1. ágúst verða greiddir 17,7 ma.kr. úr ríkissjóði til heimila. Þar er um að ræða endurgreiðslu á ofgreiddum sköttum, barnabætur og vaxtabætur. Inneign framteljenda að lokinni álagningu er alls 21,6 ma.kr., en 3,9 ma.kr. af henni verður ráðstafað upp í kröfur ríkissjóðs vegna vangoldinna gjalda. Útborgunin er sundurliðuð í meðfylgjandi töflu.
Tegund greiðslu M.kr.
Barnabætur 2.495
Vaxtabætur 6.747
Ofgreidd staðgreiðsla tekjuskatts og útsvars 7.400
Ofgreidd staðgreiðsla fjármagnstekjuskatts 711
Annað 369
Alls 17.722

 

  • Heildarfjárhæðin sem greidd er út 1. ágúst lækkar úr 18,3 ma.kr. í 17,7 ma.kr. milli ára, einkum vegna lækkunar vaxtabóta. Þá mun ríkissjóður greiða 2,5 ma.kr. í barnabætur 1. nóvember nk.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum