Hoppa yfir valmynd
18. júlí 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stefna í lánamálum ríkisins 2014-2017

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt stefnu í lánamálum ríkisins 2014 – 2017. Er þetta í fjórða sinn sem slík stefna er birt. Helstu breytingar sem orðið hafa frá síðustu útgáfu snúa að viðmiðunarreglum fyrir samsetningu lánasafns, en vægi verðtryggðra lána er minnkað og vægi óverðtryggðra lána er aukið. Einnig er gerð breyting á markmiði um innlenda innstæðu í Seðlabankanum, úr 80 milljörðum króna í um 60 – 70  ma.kr. að jafnaði.

Helstu markmið við lánastýringu ríkisins eru:

  • Að tryggja að lánsfjárþörf og fjárhagslegum skuldbindingum ríkissjóðs sé mætt með lágmarkskostnaði til lengri tíma litið, að teknu tilliti til varfærinnar áhættustefnu.
  • Að tryggja að endurgreiðsluferill lána sé í samræmi við greiðslugetu ríkisins til lengri tíma litið.
  • Að viðhalda og stuðla að frekari uppbyggingu á skilvirkum frum- og eftirmarkaði með innlend ríkisverðbréf.
  • Að höfða til breiðs hóps fjárfesta í ríkisverðbréfum og nýta fjölbreytta fjármögnunarmöguleika.

Uppbygging markflokka ríkisbréfa miðar að því að hver flokkur verði nægilega stór til að tryggja virka verðmyndun á eftirmarkaði. Árlega verða gefnir út 2, 5 og 10 ára markflokkar ríkisbréfa. Til að draga úr endurfjármögnunaráhættu er stefnt að því að endurgreiðsluferill ríkisverðbréfa verði sem jafnastur. Þá er stefnt að því að meðallánstími verði 4 ár að lágmarki.

Lán ríkissjóðs í erlendum gjaldmiðlum eru einkum tekin til að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Stefnt er að reglulegri útgáfu markaðsskuldabréfa ríkissjóðs á alþjóðlegum mörkuðum og höfða skal til fjölbreytts hóps fjárfesta.

Í stefnunni kemur einnig fram að ríkissjóður hefur fengið óháða aðila til að taka út hagkvæmni vaxtaskiptasamninga. Áætlað er niðurstaða úttektarinnar liggi fyrir í haust. Einnig er fyrirhugað að breyta skuldabréfi Seðlabanka Íslands í óverðtryggt afborgunarbréf með lokagjalddaga 2043. Þetta hefur áhrif á endurgreiðsluferil ríkissjóðs sem og samsetningu þar sem hlutfall óverðtryggðra lána eykst við þessa breytingu.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið ber ábyrgð á lánaumsýslu ríkisins, mótar stefnu í lánamálum og tekur ákvarðanir um útgáfu verðbréfa. Lánamál ríkisins, sérstök deild innan Seðlabankans, sér um framkvæmd stefnunnar í samræmi við samning milli bankans og fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Nánari upplýsingar veitir Esther Finnbogadóttir í síma 5459200 eða í tölvupósti [email protected].

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum