Hoppa yfir valmynd
27. mars 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skýrsla á ensku um efnahagsmál

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út skýrslu á ensku um íslensk efnahagsmál. Skýrslan er í fjórum meginköflum og byggir á þeirri stefnu sem sett hefur verið fram í fjárlögum, Ríkisbúskapnum 2013-2016, Ísland 2020, Stefnu í lánamálum ríkisins 2012-2015 og annarri stefnumótun stjórnvalda. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur notið góðrar aðstoðar viðkomandi fagráðuneyta og stofnana við gerð skýrslunnar.

Fyrsti kaflinn setur fram meginþætti efnahagsstefnunnar. Annar kaflinn fjallar um þjóðhagsspá og efnahagsmál almennt. Þar er fjallað um þróun efnahagsmála síðustu misseri og spá Hagstofunnar og sýn ráðuneytisins til næstu ára. Þriðji kaflinn fjallar um fjármál hins opinbera. Stærstur hluti kaflans fjallar um stefnu ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum og skuldir ríkissjóðs. Í fjórða kafla skýrslunnar er fjallað um kerfisumbætur á ýmsum sviðum.

Economic Programme 2014


 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum