Hoppa yfir valmynd
14. mars 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ríkissjóður til dómstóla vegna áforma um gjaldtöku við Geysi

Ríkissjóður Íslands unir ekki niðurstöðu sýslumannsins á Selfossi, sem hafnaði kröfu um lögbann við innheimtu gjalds af ferðamönnum við Geysi. Hefur ríkissjóður tilkynnt sýslumanni að málinu verði skotið til dómstóla. Verður greinargerð þar um ásamt gögnum afhent héraðsdómi Suðurlands í dag. 

Sameigendur ríkisins að svæði við Geysi hafa haft fyrirætlanir um gjaldtöku af ferðamönnum sem fara um það. Fjármála- og efnahagsráðherra fór fram á það við sýslumann að lögbann yrði sett við innheimtu gjalds. Sýslumaður hafnaði beiðninni 12. mars sl.

Eins og fram hefur komið er hluti lands innan girðingar á svæðinu séreign ríkisins samkvæmt afsali frá 1935. Innan þess eru helstu hverir svæðisins, þ.e. Geysir, Strokkur og Blesi. Landið umhverfis þessa séreign ríkisins er hins vegar í sameign ríkis og félags landeigenda. Ríkissjóður á fyrir utan séreignina u.þ.b 25% í sameignarlandinu með félaginu.

Ríkissjóður hefur lýst sig andsnúinn fyrirhugaðri gjaldtöku sameigenda að landinu við Geysi og bent á að landeigendafélagið geti ekki ráðist í framkvæmdir á séreignarlandi ríkissjóðs né innheimt gjald vegna þess. Innheimta gjalds væri sömuleiðis grundvallarbreyting á afnotum svæðisins og tilgangi frá því sem verið hefur og myndi takmarka afnot af sameignarlandi og séreign íslenska ríkisins.

Sameigendum ríkisins hefur verið boðið að ríkissjóður bæri kostnað af nauðsynlegum framkvæmdum til að tryggja vernd svæðisins og til að kosta rekstur þess og gæslu á því, út árið 2015. Var þetta boðið gegn því að sameigendur féllu frá fyrirhugaðri gjaldtöku og reynt yrði í kjölfarið að ná samkomulagi um framtíðarskipan mála á svæðinu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum