Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Alþjóðleg rannsókn á umbótum í opinberri stjórnsýslu

Áhrif umbóta í opinberri stjórnsýslu á samdráttartímum verða metin í alþjóðlegri viðhorfskönnun sem hófst í dag.  Könnunin er hluti af erlendri samanburðarrannsókn á þessu sviði og eru íslenskir þátttakendur um 400 stjórnendur hjá ríkinu.

Í könnuninni verða stjórnendur m.a. spurðir um persónulega reynslu og skoðun á opinberum rekstri, stjórnsýsluumbótum og áhrifum fjármálakreppunnar á opinbera stjórnsýslu.

Tilgangur rannsóknarinnar er að meta áhrif umbótaaðgerða í opinberri stjórnsýslu á þjónustu við almenning. Niðurstöður könnunarinnar munu gefa mikilvægar upplýsingar um stöðu og þróun umbótamála á Íslandi sem nýtast munu stjórnsýslunni á komandi árum.  Jafnframt gefst gott tækifæri til að meta íslenska stjórnsýslu í alþjóðlegu samhengi.

Könnunin er samstarfsverkefni fjármála- og efnahagsráðuneytis, stjórnmálafræðideildar Háskóla Íslands og samstarfsnets evrópskra háskóla.  Könnunin er hluti af COCOPS (Coordinating for Cohesion in the Public Sector of the Future) rannsókninni og hafa stjórnendur í yfir 15 ríkjum í Evrópu tekið þátt í henni.

Nánari upplýsingar um verkefnið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum