Hoppa yfir valmynd
22. janúar 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dr. Tryggvi Þór ráðinn verkefnisstjóri

Tryggvi Þór Herbertsson
Tryggvi Þór Herbertsson

Dr. Tryggvi Þór Herbertsson hefur verið ráðinn verkefnisstjóri um framkvæmd höfuðstólslækkunar íbúðalána.

Fjármála- og efnahagsráðherra skipaði þann 8. janúar sl. sérstaka verkefnisstjórn sem ætlað er að hafa yfirumsjón með undirbúningi og framkvæmd verkefnisins.

Mun dr.Tryggvi Þór vinna með verkefnisstjórninni.

Dr. Tryggvi Þór er fyrrverandi alþingismaður. Hann er með doktorspróf í hagfræði frá Árósaháskóla.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum