Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fundur með fjármálaráðherrum Íslands og Grænlands haldinn á morgun

Fundur Grænlensk-íslenska viðskiptaráðsins með fjármálaráðherrum Íslands og Grænlands sem halda átti í morgun frestaðist vegna veðurs, en verður þess í stað á morgun, þriðjudag.

Vittos Qujaukitsoq, fjármálaráðherra Grænlands, er í opinberri heimsókn á Íslandi dagana 12-16. janúar.  Qujaukitsoq og föruneyti hans var veðurteppt á Austurlandi í gær og því varð að fresta fundinum.

Ákveðið hefur verið að halda fundinn þess í stað þriðjudaginn 14. janúar klukkan 15.

Nánari upplýsingar eru á vef Grænlensk-íslenska viðskiptaráðsins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum