Fjármálaráðherra Grænlands í opinbera heimsókn
Vittus Qujaukitsoq, fjármálaráðherra Grænlands, verður í opinberri heimsókn á Íslandi dagana 12-16. janúar. Qujaukitsoq kemur hingað í boði Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra.
Meðan á dvöl grænlenska ráðherrans stendur kynnir hann sér starfsemi ýmissa fyrirtækja og stofnana hér á landi og sækir meðal annars Austurland og Vestmannaeyjar heim.
Mánudaginn 13. janúar tekur Qujaukitsoq þátt í morgunfundi Grænlensk-íslenska viðskiptaráðsins, ásamt Bjarna Benediktssyni. Yfirskrift fundarins er Gagnkvæm tækifæri: Grænland - Ísland.