Settur skrifstofustjóri rekstrarsviðs
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur sett Sverri Jónsson til að gegna embætti skrifstofustjóra rekstrarsviðs ráðuneytisins. Sverrir gegnir embættinu í fjarveru Angantýs Einarssonar, sem um mánaðamótin hóf störf í sendiráði Íslands í Brussel.
Sverrir hefur meistarapróf í stjórnsýslufræði frá Háskóla Íslands. Hann útskrifaðist árið 2003 frá hagfræðideild Háskóla Íslands með atvinnulífsfræði sem aukagrein.
Sverrir starfaði sem hagfræðingur hjá kjarasviði SFR-stéttarfélags í almannaþjónustu árin 2003 - 2006.
Hann hóf störf á starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins árið 2006 og var þar til 2011. Þá tók hann við sem staðgengill skrifstofustjóra rekstrarsviðs ráðuneytisins.