Hoppa yfir valmynd
5. nóvember 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Athugasemdir við skýrslu Hagfræðistofnunar um breytingar á fjölda ríkisstarfsmanna í kjölfar efnahagshrunsins

Margvíslegar skekkjur eru í tölulegum upplýsingum í nýlegri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um breytingar á fjölda ríkisstarfsmanna í kjölfar efnahagshrunsins. Þetta kemur fram í athugasemdum sem fjármála- og efnhagsráðuneytið hefur tekið saman vegna skýrslunnar.

Skýrsla Hagfræðistofnunar var tekin saman fyrir Byggðastofnun, en tímabilið sem skoðað var eru árin 2007-2011.

Í athugasemdum fjármála- og efnahagsráðuneytisins segir m.a. að vegna skekkja í tölulegum upplýsingum í skýrslunni sé ekki unnt að draga af þeim ályktanir um umfang og dreifingu samdráttar í fjárveitingum undanfarinna ára eins og gert hafi verið í opinberri umræðu undanfarið.

Bent er á að mat á breytingum á fjölda ríkistarfsmanna á tímabilinu 2007-2011 sé vandasamt því miklar breytingar hafi verið gerðar á starfsemi ríkisins. M.a. þurfi að hafa í huga að um 1.500 ársverk hafi færst til vegna flutnings verkefna frá ríki til sveitarfélega og hlutafélaga. Þá hafi verkefnum verið útvistað, sem dæmi hafi um hundrað ársverk færst frá Landspítala af þeim sökum.

Ekki í samræmi við launabókhald ríkisins

Í athugasemdum fjármála- og efnahagsráðuneytisins kemur fram að niðurstöður skýrslu Hagfræðistofnunar séu ekki í samræmi við upplýsingar um fjölda ársverka úr launabókhaldi ríkisins. Samkvæmt upplýsingum úr bókhaldinu hafi ársverkum á tímabilinu 2007-2011 fjölgað um 120, þegar tekið hafi verið tillit til allra tilfærslna, en ekki 198 eins og fram komi í skýrslu Hagfræðistofnunar. Þetta sé 0,7% fjölgun miðað við fjölda ársverka 2007.

Einnig bendir ráðuneytið á að á árinu 2011 hafi mátt rekja 292 ársverk til ákvarðana stjórnvalda um að setja á fót nýjar stofnanir og styrkja aðrar sem fyrir voru í kjölfar efnahagshrunsins. Þar má nefna embætti Sérstaks saksóknara með 70 ársverk, Umboðsmann skuldara með 70 ársverk, Fjármálaeftirlitið með 60 ársverk og Vinnumálastofnun með 55 ársverk.

Athugasemdir fjármála- og efnahagsráðuneytis við skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um „Breytingar á fjölda ríkisstarfsmanna í kjölfar efnhagshrunsins“

 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum