Hoppa yfir valmynd
22. júlí 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dómur í máli Íslands gegn Eftirlitsstofnun EFTA

EFTA-dómstóllinn í Lúxemborg hefur kveðið upp dóm í máli E- 9/12 sem íslenska ríkið höfðaði hinn 4. september 2012 fyrir dómstólnum.

Íslenska ríkið höfðaði málið til ógildingar á þeim hluta ákvörðunar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá 4. júlí 2012, sem laut að sölu ríkisins á fasteignum á fyrrum varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli til fyrirtækisins Verne ehf. árið 2008.

EFTA-dómstóllinn í Lúxemborg hefur kveðið upp dóm í máli E- 9/12 sem íslenska ríkið höfðaði hinn 4. september 2012 fyrir dómstólnum til ógildingar á þeim hluta ákvörðunar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá 4. júlí 2012, sem laut að sölu ríkisins á fasteignum á fyrrum varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli til fyrirtækisins Verne ehf. árið 2008.

Í ákvörðuninni komst ESA að þeirri niðurstöðu að söluferli Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf. (Kadeco) hefði ekki verið nægilega opið og gagnsætt til þess að fullyrða mætti að aðilar á markaði hefðu á fullnægjandi hátt getað kynnt sér umræddar fasteignir og boðið í þær. Þar með væri ekki unnt að fullyrða að markaðsverð hafi fengist fyrir eignirnar.

Íslensk stjórnvöld töldu þvert á móti að söluferlið hafi verið auglýst á fullnægjandi hátt og opið öllum hugsanlegum kaupendum og að uppfylltar hafi verið leiðbeiningarreglur ESA um sölu á fasteignum hins opinbera. Þær kveða á um að söluferli sé nægilega opið ef það er auglýst í innlendum blöðum eða birt með öðrum viðeigandi hætti. Í málinu var bent á að Kadeco auglýsti á sínum tíma fasteignir á varnarsvæðinu í helstu dagblöðum landsins, þar sem vísað var á frekari upplýsingar um eignirnar á vef félagsins. Þannig hafi allir hugsanlegir kaupendur haft möguleika á að kynna sér og bjóða í þær eignir sem seldar voru Verne. Í umræddum leiðbeiningarreglum ESA kemur fram að sala á eignum fari ótvírætt fram á markaðsvirði þegar að henni er staðið með nægilega vel auglýstu, opnu og skilmálalausu söluferli, þar sem besta eða eina innsenda tilboðinu er tekið. Slík sala geti því ekki falið í sér ríkisaðstoð til handa kaupandanum.

Þess má geta að Ríkisendurskoðun komst að þeirri niðurstöðu í stjórnsýsluúttekt árið 2008 að seldar fasteignir á fyrrum varnarsvæðinu hafi verið auglýstar með fullnægjandi hætti og hagsmuna ríkisins hafi verið gætt við ráðstöfun þeirra.

Í stefnunni byggði íslenska ríkið meðal annars á því að ESA hafi ekki rannsakað tilhlýðilega þann þátt málsins sem varðar sölu fasteignanna og að stofnunin hafi ekki rökstutt ákvörðunina með fullnægjandi hætti.

Dómstóllinn tók ekki undir röksemdir íslenskra stjórnvalda um að ESA hefði ekki sýnt fram á að fasteignirnar hafi verið seldar undir markaðsvirði. Dómstóllinn féllst á hins vegar á það með ESA að söluferli fasteignanna hefði ekki verið nægilega auglýst í merkingu leiðbeiningareglna stofnunarinnar um sölu fasteigna. Dómstóllinn lagði í því sambandi áherslu á að fjórar fasteignanna hefðu einungis verið auglýstar sérstaklega á heimasíðu KADECO og taldi að ekkert væri í málinu sem benti til þess að heimasíða félagsins væri heppilegur vettvangur til þess að ná til allra kaupenda. Þar með gæti kaupverðið ekki endurspeglað markaðsvirði eignanna. Að því gefnu féllst dómstóllinn á það að ESA hafi mátt reiða sig á matsverð Fasteignaskrár Íslands við mat á markaðsvirðinu.

Ríkisaðstoðin sem málið varðar, þ.e. mismunurinn á matsverði Fasteignaskrár Íslands og söluverðinu, var endurgreidd af hálfu Verne ehf. með dráttarvöxtum í kjölfar ákvörðunar ESA í málinu á árinu 2012. Með þeim hætti var staða fyrirtækisins leiðrétt líkt og áskilið var í ákvörðun ESA.

Dómurinn er birtur á vef EFTA-dómstólsins á vefslóðinni:
http://www.eftacourt.int/fileadmin/user_upload/Files/Cases/2012/9_12/9_12_Judgment.pdf

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum