Hoppa yfir valmynd
24. apríl 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

ESA lýkur rannsókn varðandi ríkisábyrgðir Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur í dag lokið rannsókn sinni á máli varðandi ríkisábyrgðir Landsvirkjunar og  Orkuveitu Reykjavíkur.  Þetta er gert í kjölfar þess að íslensk stjórnvöld urðu við tilmælum ESA og settu reglur sem tryggja að ríkisábyrgðir sem fyrirtækin njóta samrýmist að fullu reglum EES-samningsins.

Orðið var við tilmælum ESA og m.a. gerðar breytingar á lögum um ríkisábyrgðir, lögum um Landsvirkjun og lögum um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur.

Málið má rekja til ákvörðunar ESA frá árinu 2009 í tengslum við rannsókn stofnunarinnar á fyrirkomulagi eigendaábyrgða Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur. ESA leit svo á að umræddar ríkisábyrgðir teldust ríkisaðstoð sem væri ósamrýmanleg ákvæðum EES samningsins. Stofnunin fór því fram á að íslensk yfirvöld breyttu reglunum.

Nýjar reglur um ríkisábygðir vegna skuldbindinga Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur fela meðal annars í sér eftirfarandi:

  • Hvorki Landsvirkjun né Orkuveita Reykjavíkur njóta nú góðs af ótakmarkaðri ríkisábyrgð vegna skuldbindinga sinna.
  • Bæði fyrirtækin greiða nú sérstakt ríkisábyrgðargjald sem samsvarar að fullu ávinningi sem í ábyrgðinni felst, í formi hagstæðari lánskjara umfram þau kjör sem almennt bjóðast á markaði án ríkisábyrgðar. Gjaldið er ákveðið á grundvelli mats óháðs aðila á því hvað telst hæfilegt markaðsgjald vegna ábyrgðanna.
  • Ríki og sveitarfélög munu aðeins gangast í ábyrgðir fyrir að hámarki 80% af heildarverðmæti skuldbindinga fyrirtækjanna. Ef svo vill til að fyrirtækin lendi í fjárhagserfiðleikum munu þau ekki eigi rétt á ríkisábyrgð vegna frekari skuldbindinga.
  • Engin efndaábyrgð verður veitt vegna nýrra raforkusamninga sem samþykktir verða af hálfu fyrirtækjanna tveggja.

Tilkynning ESA varðandi ríkisábyrgðir Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum