Stefna í lánamálum ríkissjóðs fyrir árin 2013-2016
Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir stefnu í lánamálum ríkissjóðs 2013-2016.
Stefnan endurspeglar áform stjórnvalda um framkvæmd lánsfjármögnunar á tímabilinu.
Í stefnunni er lýst núverandi samsetningu lána ríkissjóðs, helstu áhættuþáttum við lánastýringu og áhættuskuldbindingum ríkissjóðs. Þá er lýst skipulagi við framkvæmd lánamála. Fjármála- og efnahagsráðuneytið ber ábyrgð á lánaumsýslu ríkisins, mótar stefnu í lánamálum og tekur ákvarðanir um útgáfu verðbréfa. Lánamál ríkisins, sérstök deild innan Seðlabankans, sér um framkvæmd stefnunnar í samræmi við samning milli bankans og fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Stefna í lánamálum er nú birt þriðja sinni. Helstu markmið við lánastýringu ríkisins eru:
- Að tryggja að lánsfjárþörf og fjárhagslegum skuldbindingum ríkissjóðs sé mætt með lágmarkskostnaði til lengri tíma litið, að teknu tilliti til varfærinnar áhættustefnu.
- Að tryggja að endurgreiðsluferill lána sé í samræmi við greiðslugetu ríkisins til lengri tíma litið.
- Að viðhalda og stuðla að frekari uppbyggingu á skilvirkum frum- og eftirmarkaði með innlend ríkisverðbréf.
- Að höfða til breiðs hóps fjárfesta í ríkisverðbréfum og nýta fjölbreytta fjármögnunarmöguleika.
- Stefnan verður uppfærð og endurskoðuð árlega.
Uppbygging markflokka ríkisbréfa miðar að því að hver flokkur verði nægilega stór til að tryggja virka verðmyndun á eftirmarkaði. Árlega verða gefnir út 2, 5 og 10 ára markflokkar ríkisbréfa. Til að draga úr endurfjármögnunaráhættu er stefnt að því að endurgreiðsluferill ríkisverðbréfa verði sem jafnastur. Þá er stefnt að því að meðallánstími verði 4 ár að lágmarki.
Lán ríkissjóðs í erlendum gjaldmiðlum eru einkum tekin til að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Stefnt er að reglulegri útgáfu markaðsskuldabréfa ríkissjóðs á alþjóðlegum mörkuðum og höfða skal til fjölbreytts hóps fjárfesta.
- Stefna í lánamálum ríkisins 2013-2016 (PDF 300 KB)
Nánari upplýsingar veita
- Esther Finnbogadóttir, sérfræðingur á fjárreiðu- og eignaskrifstofu fjármála- og efnahagsráðuneytisins, [email protected] og
- Elva Björk Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins, [email protected].