Hoppa yfir valmynd
25. febrúar 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vegna umfjöllunar um tollfrelsi skemmtiferðaskipa

Vegna fréttaumfjöllunar um tollfrelsi skemmtiferðaskipa í innanlandssiglingum tekur fjármála- og efnahagsráðuneytið eftirfarandi fram:

Alþingi samþykkti á vorþingi 2012 breytingu á tollalögum að frumkvæði nokkurra þingmanna. Í henni felst að skemmtiferðaskip sem skráð eru erlendis og stunda hér innanlandssiglingar geta notið samskonar tollfríðinda og skemmtiferðaskip í millilandasiglingum í fjóra mánuði á hverju tólf mánaða tímabili.

Við afgreiðslu breytingarinnar kom fram að ákvæðið væri lögfest til bráðabirgða og að fjármála- og efnahagsráðherra myndi skipa starfshóp til að gera tillögur um varanlegt fyrirkomulag skipaumferðar af þessu tagi.

Starfshópurinn var skipaður í ágúst í fyrra, en í honum sátu fulltrúar frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, tollstjóra og ríkisskattstjóra. Hópurinn skilaði í hugmyndum að leiðum til úrbóta í október sl.  Í framhaldinu hefur ráðuneytið haft til skoðunar hvort rétt sé að leggja til að skilyrði undanþágunnar verði skilgreind með skýrari hætti í tollalögum en nú er.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum