Hoppa yfir valmynd
11. desember 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vaxtagjöld heimila drógust saman árin 2010 og 2011

Vaxtagjöld íslenskra heimila drógust nokkuð saman árin 2010 og 2011 í kjölfar lægri vaxta og endurskipulagningar á efnahagsreikningum heimila. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn á Alþingi um vexti og framfærslukostnað.

Annars vegar var spurt um hlutfall vaxta af framfærslukostnaði heimilanna og hins vegar um ráðstafanir sem gripið hefði verið til í því skyni að draga úr þessum kostnaði.

Fram kemur í svari ráðherra að ekki sé til nein opinber skilgreining á því hvernig meta skuli framfærslukostnað heimila. Í svarinu er miðað við að einkaneysla heimila alls sé ígildi framfærslukostnaðar. Vaxtagjöld eru vaxtagjöld vegna íbúðarkaupa, kaupleiguíbúða og önnur vaxtagjöld heimila.

Vaxtagjöldin jukust allt til ársins 2009, en þá námu þau  rúmlega 116 milljörðum króna eða sem nam 15,8% af einkaneyslu heimila alls. Árin 2010 og 2011 drógust útgjöldin síðan nokkuð saman í kjölfar lægri vaxta og endurskipulagningar á efnahagsreikningum heimila. Hlutfall vaxtagjalda af einkaneyslu heimila hefur sömuleiðis dregist saman og nam árið 2011 10,6%.

Viðmiðunarfjárhæðir vegna greiðslu vaxtabóta hækkaðar

Þá var spurt til hvaða ráðstafana ráðuneytið hefði gripið til þess að draga úr þessum kostnaði.  Í svari ráðherra er bent á að árin 2009 og 2010 hafi allar viðmiðunarfjárhæðir  við greiðslur vaxtabóta verið hækkaðar verulega, en tímabundið, sem hluti af ráðstöfunum stjórnvalda til að bæta stöðu skuldsettra heimila.  „Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2011 var gert ráð fyrir að þessi hækkun gengi til baka vegna aðhaldsráðstafana en fallið var frá þeirri ákvörðun í fjárlögum það ár. Miðað er við fyrrgreint viðmið í útgreiðslu vaxtabóta í frumvarpi til fjárlaga 2013.

Í  fjárlögum fyrir árin 2011 og 2012 var veitt 6 milljarða króna árlegt tímabundið framlag sem nefndust sérstakar vaxtaniðurgreiðslur. Niðurgreiðslan var almenn og  óháð tekjum. Framlagið var fjármagnað í samkomulagi við fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóði að hluta en ríkissjóður hefur þó greitt bróðurpartinn af niðurgreiðslunni.

Árið 2011 nam hlutfall vaxtabóta af vaxtagjöldum heimila alls 21,9% og hafði rúmlega tvöfaldast á milli ára. Ef eingöngu er miðað við vaxtagjöld vegna öflunar íbúðarhúsnæðis, en það eru einu vaxtagjöldin sem koma til athugunar við úthlutun vaxtabóta, þá nam hlutfallið 35,2%. Gera má ráð fyrir svipuðum hlutföllum fyrir árið 2012,“ segir í svari fjármála- og efnahagsráðherra.

Vaxtagjöld, vaxtabætur og einkaneysla (milljónir króna á verðlagi hvers tíma)

Ár
Vaxtagjöld heimila alls
Vaxtagjöld heimila vegna íbúðarkaupa
Vaxtabætur
Hlutfall vaxtabóta af vaxtagjöldum heimila alls (%)
Hlutfall vaxtabóta af vaxtagjöldum heimila vegna íbúðarkaupa (%)
Einkaneysla heimila alls
Hlutfall vaxtagjalda heimila alls af einkaneyslu heimila alls (%)
2000
26.801
20.311
4.309
16,1
21,2
400.154
6,7
2001
31.353
23.271
4.721
15,1
20,3
418.190
7,5
2002
35.608
26.458
5.117
14,4
19,3
430.988
8,3
2003
38.224
28.801
5.756
15,1
20,0
463.476
8,2
2004
45.337
34.503
5.458
12,0
15,8
511.808
8,9
2005
50.628
36.786
5.472
10,8
14,9
588.997
8,6
2006
56.130
36.605
5.351
9,5
14,6
656.333
8,6
2007
68.442
42.859
5.633
8,2
13,1
725.158
9,4
2008
86.111
53.898
7.013
8,1
13,0
760.286
11,3
2009
116.124
60.002
10.429
9,0
17,4
733.218
15,8
2010
107.401
60.263
11.721
10,9
19,4
759.821
14,1
2011
86.470
53.849
18.970
21,9
35,2
813.192
10,6

Heimild: Hagstofa Íslands

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum