Sækja ársfund AGS og Alþjóðabankans
Sendinefnd á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Seðlabanka Íslands tekur dagana 11-14. október þátt í ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og Alþjóðabankans. Fundurinn er haldinn í Tókýó í Japan.
Helstu umræðuefni fundarins eru staða og þróun efnahagsmála á heimsvísu. Meðan á honum stendur munu fulltrúar Íslands m.a. funda með fjármálastofnunum, matsfyrirtækjum og starfsfólki AGS.