Hoppa yfir valmynd
30. ágúst 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Starfshópur um skattlagningu í ferðaþjónustu

Fjármálaráðherra hefur í samráði við aðila ferðaþjónustunnar stofnað starfshóp um skattlagningu ferðaþjónustugreina og málefni sem henni tengjast.

Ákveðið var að stofna hópinn í framhaldi af gagnlegum fundum sem fjármálaráðuneytið hefur haldið, m.a. með hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu.

Í starfshópinn hafa eftirfarandi verið tilnefndir: Gunnar Tryggvason, formaður, Guðrún Þórdís Guðmundsdóttir, tilnefnd af fjármálaráðherra, Jón Guðmundsson frá ríkisskattstjóra, Erna Hauksdóttir og Kristófer Oliversson frá Samtökum ferðaþjónustunnar, Helga Haraldsdóttir frá iðnaðarráðuneyti og Gunnlaugur Geirsson frá innanríkisráðuneyti. 

Starfshópurinn á að skila fjármálaráðherra niðurstöðum sínum og tillögum fyrir lok september.

Hópnum er sérstaklega ætlað að fjalla um eftirfarandi:

  • forsendur og áhrif þess að breyta álagningu virðisaukaskatts á gistiþjónustu
  • samkeppnissstöðu og jafnræði greina innan ferðaþjónustunnar í skattalegu tilliti og leyfisveitingar til aðila sem bjóða gistiþjónustu
  • aðgerðir til að koma í veg fyrir undanskot frá skattgreiðslum og til að styrkja stöðu ferðaþjónustunnar

Auk þess hefur ráðuneytið óskað eftir að Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vinni skýrslu um áhrif væntanlegra breytinga á virðisaukaskatti á gistiþjónustu á ríkissjóð,og á ferðaþjónustu. Verður skýrslan kynnt í næstu viku.

Gögn frá fundum fjármálaráðuneytisins með hagsmunaðilum í ferðaþjónustu:

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum