Hoppa yfir valmynd
18. júní 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ríkissjóður Íslands og Seðlabanki Íslands fyrirframgreiða lán til AGS og Norðurlandanna

Endurgreiðsluferill erlendra lána ríkissjóðs og Seðlabankans
Endurgreiðsluferill erlendra lána ríkissjóðs og Seðlabankans

Ríkissjóður Íslands og Seðlabanki Íslands greiða í byrjun þessarar viku samtals 171 ma.kr. af lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) og Norðurlöndunum sem tekin voru í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda sem studd var af AGS.

Um er að ræða fyrirframgreiðslu að fjárhæð 319 milljónir SDR, jafnvirði um 62 ma.kr., til AGS og 674 milljónir evra, jafnvirði um 109 ma.kr., til Norðurlandanna.

Að þessum fyrirframgreiðslum loknum verður búið að greiða til baka 53% af upphaflegri lánsfjárhæð frá AGS og 59% af upphaflegri lánafyrirgreiðslu Norðurlandanna.

Þessi ákvörðun um fyrirframgreiðslur nú kemur í framhaldi af skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs á alþjóðlegum mörkuðum í maí síðastliðnum að fjárhæð 1.000 milljónir bandaríkjadala, að jafnvirði 125 ma.kr. Sú aðgerð undirstrikar aðgang Íslands að erlendum lánsfjármörkuðum og veitir svigrúm til að endurgreiða önnur lán sem eru til skemmri tíma sem tekin voru sem hluti af efnahagsáætlun stjórnvalda og AGS. Fyrirframgreiðslan nú nær til gjalddaga sem falla á árinu 2013 og 2014 í tilfelli AGS-lána. Greiðslur til Norðurlandanna eru vegna gjalddaga sem falla á árunum 2016, 2017 og 2018.

Ákvörðun um endurgreiðslu er jafnframt tekin með hliðsjón af tiltölulega rúmri lausafjárstöðu ríkissjóðs og Seðlabankans í erlendri mynt næstu misseri.

Lán AGS og Norðurlandanna námu í upphafi um 3,5 milljörðum evra eða sem svarar um 558 ma.kr. miðað við núverandi gengi, útgáfa ríkisjóðs í maí sl. og endurgreiðsla lána nú hefur ekki áhrif á hreinar skuldir ríkissjóðs, en heildarskuldir ríkissjóðs hækka um 2,6% af VLF þar sem hluta lántökunnar er varið til að greiða niður skuldir sem færðar eru hjá Seðlabankanum.

Erlend skuldastaða þjóðarbúsins lækkar í heild um u.þ.b. 2,6% af VLF við þessar breytingar en hrein skuldastaða er óbreytt.

Endurgreiðsluferill erlendra lána ríkissjóðs og Seðlabankans


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum