Hoppa yfir valmynd
5. maí 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ríkissjóður greiðir 2,6 mia. kr í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur til húseigenda

Nú um mánaðarmótin greiddi ríkissjóður 2,648 milljarða króna í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur til húseigenda vegna skulda íbúðarhúsnæðis þeirra.

Vaxtaniðurgreiðsla er greidd út í tvennu lagi, 1. maí og við álagningu 1. ágúst. Alls fengu 90.477 húseigendur vaxtagreiðslu um síðastliðin mánaðarmót og var meðalgreiðsla á mann að meðaltali 30 þúsund kr.

Til viðbótar við hefðbundnar vaxtabætur greiðir ríkissjóður sérstaka niðurgreiðslu vaxta við álagningu opinberra gjalda árin 2011 og 2012. Vaxtaniðurgreiðslan er greidd út í tvennu lagi, 1. maí og við álagningu 1. ágúst.  Þann 1. maí sl. var helmingur áætlaðar niðurgreiðslu greiddur fyrirfram en ákvörðun á niðurgreiðslunni mun liggja fyrir við álagninguna þann 1. ágúst.næstkomandi.

Alls greiddi ríkissjóður 2,648 milljarða króna að þessu sinni í þessar sérstöku vaxtaniðurgreiðslur til húseigenda vegna skulda íbúðarhúsnæðis þeirra. Alls fengu 90.477 húseigendur vaxtagreiðslu um síðastliðin mánaðarmót og var meðalgreiðsla á mann að meðaltali 30 þúsund kr.

Við útreikning á fyrirframgreiðslunni 1. maí 2012 var höfð hliðsjón af skattframtali 2012 og fyrirliggjandi upplýsingum um tekjur, eignir og skuldir. Hér má lesa um forsendur fyrir ákvörðun sérstakar vaxtaniðurgreiðslu;

  • Vaxtaniðurgreiðslan er 0,6% af skuldum vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota eins og þær eru í árslok 2010 og 2011 samkvæmt skattframtölum 2011 og 2012.
  • Vaxtaniðurgreiðslan getur að hámarki orðið 200.000 kr. hjá einhleypingi og 300.000 kr. hjá hjónum, sambúðarfólki og einstæðu foreldri.
  • Hámark sérstakrar vaxtaniðurgreiðslu hjá þeim sem bera fulla og ótakmarkaða skattskyldu hér á landi hluta úr ári ákvarðast í hlutfalli við dvalartíma þeirra á landinu á viðmiðunarárinu.
  • Vaxtaniðurgreiðsla að viðbættum vaxtabótum getur ekki orðið hærri en vaxtagjöld viðmiðunarársins vegna kaupa eða byggingar á íbúðarhúsnæði til eigin nota.
  • Hjá þeim sem selt hafa íbúðarhúsnæði á viðmiðunarárinu og ekki keypt annað í staðinn er miðað við eftirstöðvar skulda á söludegi, sbr. reit 41 (kafli 5.3) í skattframtali.
  • Hjá þeim sem skattskyldir eru hluta úr ári vegna brottflutnings á tekjuárinu verða útreikningar miðaðir við skuldastöðu eins og hún var fyrir brottflutning.
  • Vaxtaniðurgreiðslan er ekki tekjutengd, en skerðist miðað við hreina eign (eignir að frádregnum skuldum). Skerðing hjá einstaklingi byrjar við nettóeign 10.000.000 kr. og fellur niður þegar eignin nær 20.000.000 kr. Skerðing hjá hjónum, sambúðarfólki og einstæðum foreldrum byrjar við nettóeign 15.000.000 kr. og fellur niður þegar eignin nær 30.000.000 kr.
  • Vaxtaniðurgreiðsla er greidd út í tvennu lagi, 1. maí og við álagningu 1. ágúst. Ekki er greitt fyrirfram til þeirra sem annað hvort hafa flutt til eða frá landinu á viðmiðunarári.
  • Um rétt til sérstakrar vaxtaniðurgreiðslu er fjallað í ákvæði til bráðabirgða XLII. í lögum nr. 90/2003 og einnig gilda að öðru leyti ákvæði um vaxtabætur, eftir því sem við á (ákvæði B-liðar 68. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt).
  • Sérstök vaxtaniðurgreiðsla telst ekki til skattskyldra tekna þess sem hana fær.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum