KÍ óskar ráðherra til hamingju með starfið
Dagur kvenfélagskonunnar er í dag, 1. febrúar. Forseti, varaforseti og framkvæmdastjóri Kvenfélagasambandsins færðu Oddnýju G. Harðardóttur, fjármálaráðherra blómvönd. Þannig nýttu þær daginn til að óska Oddnýju til hamingju með að vera fyrsta konan til að gegna stöðu fjármálaráðherra Íslands.
Ráðherra tók vel á móti fulltrúum Kvenfélagasambandsins. Sambandið hvetur konur og karla til að kynna sér störf kvenfélaganna á þessum degi og leggja þeim lið með einhverjum hætti.
Þess má geta að Oddný er félagskona í Kvenfélaginu Gefn í Garði.