Hoppa yfir valmynd
26. janúar 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Tollkvóti fyrir kartöflunasl frá Noregi

Með vísan til reglugerðar nr. 25/2012, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda þann 18. janúar 2012, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl í tollskrárnúmeri 2005.2003, sem upprunnið er í Noregi og er innflutt þaðan, sbr. bókun 4 við EES-samninginn:

Tollskrár-númer Vara Tímabil Vörumagn kg. Verðtollur % Magntollur kr/kg
2005.2003 Kartöflur: Nasl svo sem skífur, skrúfur, hringir, keilur, stangir o.þ.h., þó ekki úr kartöflumjöli. 15.02.12-31.12.12 15.000 0 0

Berist umsóknir um meiri innflutning en nemur auglýstum tollkvóta verður úthlutun miðuð við hlutfall innflutnings hvers umsækjanda miðað við heildarinnflutning allra umsækjenda á kartöflunasli í tollskrárnúmeri 2005.2003 á tímabilinu 1. janúar 2011 til 31. desember 2011. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Skriflegar umsóknir skulu berast til fjármálaráðuneytisins, tekju- og skattaskrifstofu, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 föstudaginn 10. febrúar n.k.

Eingöngu er auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl á heimasíðu fjármálaráðuneytisins.

Fjármálaráðuneytinu, 26. janúar 2012.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum