Hoppa yfir valmynd
17. ágúst 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samkomulag um fjármögnun Vaðlaheiðarganga

Samkomulag um framkvæmd fjármögnunar Vaðlaheiðarganga verður undirritað í Parken, Skipagötu 14 á Akureyri kl. 17:00 í dag miðvikudaginn 17. ágúst.

Samkomulagið er á milli fjármálaráðuneytisins og Vaðlaheiðarganga hf. sem Vegagerðin á 51 prósents hlut í og Greið leið ehf. 49 prósenta hlut.

Útboðsgögn vegna byggingar Vaðlaheiðarganga verða afhent föstudaginn 19. ágúst og reiknað er með að tilboð verði opnuð 4. október nk.

Allir sex sem óskuðu eftir að fá að gera tilboð í Vaðlaheiðargöng reyndust til þess hæfir, því geta þessir boðið í verkið:
 

Fyrirtæki Land   Staða
       
IAV/Marti Ísland   Joint Venture
     ÍAV hf   Ísland  
     Marti Contractors Lts.   Sviss  
       
Ístak hf Ísland    
       
Metrostav-Suðurverk Ísland   Joint Venture
     Metrostav a.s.   Tékkland  
     Suðurverk hf.          Ísland  
       
Norðurverk Ísland   Samstarfshópur
     Árni Helgason ehf.              Ísland  
     SS Byggir ehf.         Ísland  
     Skútaberg ehf.         Ísland  
     GV Gröfur ehf.   Ísland  
     Rafeyri ehf.             Ísland  
     Norðurbik ehf.         Ísland  
       
Per Aarsleff – JKP JV Danmörk   Joint Venture
     Per Aarsleff a/s   Danmörk  
     JK Petersen Contractors P/F   Færeyjar  
       
Leonhard Nilsen & Sønner AS Noregur    
       

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum