Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Upplýsingar um bankareikning vegna álagningar opinberra gjalda 2011

Þeir gjaldendur sem eiga von á inneign eftir álagningu opinberra gjalda 2011 (barna- og vaxtabætur, sérstök vaxtaniðurgreiðsla og/eða inneign í staðgreiðslu) og hafa ekki nú þegar óskað eftir að endurgreiðslur verði lagðar inn á bankareikning þurfa að tilkynna bankareikning til innheimtumanns ríkissjóðs (sýslumenn eða tollstjóri) fyrir 14. júlí n.k. til að fá inneignina innlagða þar sem ekki verða sendar út ávísanir vegna inneigna eftir álagningu.

Gjaldendur munu fá senda tilkynningu um inneign með álagningarseðli og geta fengið hana greidda út hjá innheimtumönnum hafi þeir ekki tilkynnt um bankareikning.

Reykjavík, 6. júlí 2011
Fjármálaráðuneytið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum