Hoppa yfir valmynd
9. júní 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Útboð ríkisskuldabréfa erlendis - Ríkissjóður aftur á markað

Ríkissjóður Íslands hefur í dag gengið frá samningum um útgáfu skuldabréfa að fjárhæð 1 milljarði Bandaríkjadala, jafngildi um 114 milljarða króna.

Skuldabréfin bera fasta vexti og eru gefin út til 5 ára á ávöxtunarkröfunni  4,993% vöxtum. Kjörin jafngilda 3,20% álagi á vexti á millibankamarkaði.

Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 2 milljörðum Bandaríkjadala. Fjárfestahópurinn samanstendur aðallega af fagfjárfestum frá Bandaríkjunum og Evrópu. 

Skuldabréfaútgáfan kom í framhaldi af vikulangri kynningarherferð í Bandaríkjunum og Evrópu. Umsjón var í höndum Barclays Capital, Citi og UBS Investment Bank.

 „Þessi aðgerð markar heilmikil tímamót fyrir Ísland“, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. „ Ég er afar ánægður með að ríkissjóður sé aftur kominn á markað nú aðeins tveimur og hálfu ári eftir hrun. Það er sérstaklega ánægjulegt að það reyndist vera jafn mikil eftirspurn og raun ber vitni. Viðtökur fjárfesta styðja skoðun okkur á því að endurreisn efnahagslífsins sé að heppnast og horfurnar séu góðar. Með þessu er ríkið að brjóta vindinn og það ætti að auðvelda öðrum hið sama í framhaldinu. “

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum