Hoppa yfir valmynd
4. mars 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vegna fréttaflutnings af SpKef

Vegna fréttaflutnings af málefnum SpKef í dag vill fjármálaráðuneytið taka fram að hinn nýji sparisjóður, er tók við innistæðum úr Sparisjóði Keflavíkur sem nú er í slitameðferð, er að fullu í eigu ríkisins og unnið er að því að tryggja til frambúðar og með fullnægjandi fjármögnun þá starfsemi sem í hlut á. Verður hagsmuna allra sem hlut eiga að máli gætt sem frekast er kostur.

Engin ástæða er því fyrir innstæðueigendur að óttast um fjármuni sína. Yfirlýsing stjórnvalda frá haustinu 2008, sem síðan hefur verið ítrekuð af núverandi ríkisstjórn, um að allar innstæður í íslenskum bönkum og sparisjóðum séu tryggðar, er í fullu gildi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum