Hoppa yfir valmynd
2. mars 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Nýir útreikningar samninganefndar á kostnaði ríkssjóðs vegna Icesave

Skilanefnd Landsbankans fundaði í dag með kröfuhöfum í búi bankans í Lundúnum og kynnti nýtt mat á virði eigna búsins. Í ljósi nýja matsins hefur samninganefnd Íslands vegna Icesave-samninganna endurnýjað útreikninga sína á kostnaði ríkissjóðs vegna samninganna í ljósi nýs mats skilanefndar Landsbanka Íslands á heimtum eigna bús bankans. Jafnframt hefur verið tekið tillit til nokkurra annarra staðreynda sem hafa áhrif á tölulega framsetningu á kostnaði ríkissjóðs.

Meginniðurstaða hinna nýju útreikninga að áætlaður kostnaður ríkissjóðs vegna samninganna nemi 32 ma.kr. í stað 47 áður. Í fréttatilkynningu skilanefndar kemur fram einnig fram að mat á verðmæti eignasafns búsins hefur hækkað um tæplega 160 ma.kr. frá 30. apríl 2009 til ársloka 2010, en það samsvarar því að hækkunin hafi numið 23 ma.kr. á hverjum ársfjórðungi.

Breyttar forsendur fyrir útreikningum og nýju mati samninganefndarinnar eru eftirfarandi:

  1. Áætlaðar endurheimtur upp í forgangskröfur aukast og nema nú 89% af forgangskröfum. Í krónum talið nema áætlaðar heimtur 1.175 ma.kr. í stað 1.138 ma.kr. Hækkunin nemur því 37 ma.kr. Þar af  yrði hlutur Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) 51,26% og nemur aukning TIF því um 19 ma.kr.
  2. Fyrstu greiðslur (úthlutanir) úr búi Landsbankans miðast við 1. ágúst 2011 í stað 1. júní sem fyrri útreikningar byggðu á. Lítilsháttar tafir hafa orðið á meðferð héraðsdómsmála er varða stjórnskipulegt gildi neyðarlaga og er því talið varlegt að gera ráð fyrir því að greiðslur tefjist um tvo mánuði frá því sem áður var ætlað.
  3. Fyrsta greiðsla áfallinna vaxta TIF til innstæðusjóða Bretlands og Hollands miðast við apríl lok 2011 í stað janúar. Vegna betri vissu um reikningsforsendur lækka áfallnir vextir til ársloka 2010 um 2 ma.kr.
  4. Frá eign TIF dragast 1,5 ma.kr. sem fara í greiðslu samkvæmt sérstökum samningi um skiptingu vaxtakröfu í bú Landsbankans, sbr. kafla 3.2.1.4. í greinargerð með frumvarpinu.
  5. Samsetning eigna bús Landsbankans hefur breyst þannig að hærra hlutfall þeirra er nú í reiðufé og veðtryggðu skuldabréfi NBI, samtals um 677 ma.kr. en til samanburðar nam sambærileg fjárhæð 615 ma.kr. í því uppgjöri sem skilanefndin kynnti í lok þriðja ársfjórðungs 2010. Forsendur áætlana um heimtur eru því traustari en áður og óvissa hefur minnkað.
  6. Ákveðið hefur verið að Iceland Foods greiði hluthöfum sínum arð að fjárhæð 100 milljónir punda vegna síðasta árs sem samkvæmt upplýsingum skilanefndar mun að óbreyttu ekki hafa áhrif á verðmæti eigna búsins m.v. matið 31.desember 2010. Til upplýsingar er bætt inn í töflurnar nettó áhrifum þessarar arðgreiðslu á kostnað ríkissjóðs vegna samninganna.
  7. Eignir í íslenskum krónum hafa minnkað sem hlutfall af heildareignum og nema nú 8% af heildareignum. Skýrist það að mestu leyti af því að hlutabréf í NBI yfirfærast í skuld NBI við bú Landsbankans í evrum, pundum og dollar.

Að öðru leyti byggir endurskoðað mat á sömu forsendum og greindi í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 13/2011

Meðfylgjandi er greinargerð samninganefndar Íslands vegna Icesave-samninga í tilefni af nýju mati skilanefndar Landsbanka Íslands á heimtum eigna.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum