Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2010 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Staða viðræðna vegna Icesave

Vegna fréttaflutnings um stöðu Icesave-viðræðna vill fjármálaráðuneytið að fram komi að samningsniðurstaða í málinu liggur enn ekki fyrir. Jákvæð samskipti hafa átt sér stað á undanförnum misserum milli samninganefnda þjóðanna þriggja um málið og ljóst er að árangur hefur náðst í viðræðum milli aðila. Vonir standa til þess að hægt verði að ljúka við gerð samninganna á næstu vikum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum