Hoppa yfir valmynd
8. apríl 2010 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Nýr aðstoðarmaður ráðherra

Indriði H. Þorláksson hefur látið af störfum sem aðstoðarmaður fjármálaráðherra en mun áfram starfa í fjármálaráðuneytinu að sérverkefnum. Við starfi hans tekur Huginn Freyr Þorsteinsson, aðjúnkt við hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Huginn hefur áður starfað fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð með hléum frá 2001. Hann var aðstoðarmaður Svavars Gestssonar í Icesave-nefndinni á síðasta ári.

Huginn er með M.A. gráðu í vísindaheimspeki frá Bristol háskóla í Bretlandi og hefur lagt stund á doktrosnám við sama skóla frá 2006.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum