Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2010 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Tollkvóti fyrir kartöflunasl frá Noregi

Með vísan til reglugerðar nr. 1037/2009, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda hinn 23. desember 2009, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl í tollskrár­númeri 2005.2003, sem upprunnið er í Noregi og er innflutt þaðan, sbr. bókun 4 við EES-samninginn:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollskrár­númer:

kg.

%

kr./kg

Kartöflur:

01.02.10-31.12.10

15.000

0

0

2005.2003

Nasl svo sem skífur, skrúfur, hringir, keilur, stangir o.þ.h., þó ekki úr kartöflumjöli.



Berist umsóknir um meiri innflutning en nemur auglýstum tollkvóta verður út­hlutun miðuð við hlutfall innflutnings hvers umsækjanda miðað við heildar­inn­flutning allra umsækjenda á kartöflunasli í tollskrárnúmeri 2005.2003 á tíma­bilinu 1. janúar 2009 til 31. desember 2009. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Skriflegar umsóknir skulu berast til fjármálaráðuneytisins, tekju- og skattaskrifstofu, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 föstudaginn 22. janúar n.k.

Framvegis verður eingöngu auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl á heimasíðu fjármálaráðuneytisins í desember ár hvert.

Fjármálaráðuneytinu, 7. janúar 2010.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum