Hoppa yfir valmynd
24. mars 2009 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðslufyrirkomulag barnabóta verður óbreytt

Eins og fram kom í frétt á vef fjármálaráðuneytisins frá 8. desember sl. voru uppi áform um að hefja mánaðarlegar greiðslur barnabóta á þessu ári.

Nú þegar hafa verið greiddar barnabætur fyrir þrjá fyrstu mánuði ársins, en sú greiðsla fór fram 1. febrúar sl. Að óbreyttu ætti næsta greiðsla barnabóta að berast hinn 1. maí nk., eða annar fjórðungur þeirra barnabóta sem viðkomandi barnafjölskyldu eru ákvarðaðar á árinu 2009. Fyrir tekjulág hjón með eitt barn undir 7 ára aldri nemur ársfjórðungsgreiðsla rúmlega 53 þúsund krónum, en 114 þúsund krónum séu börnin tvö, bæði yngri en 7 ára. Hjá einstæðu foreldri eru samsvarandi greiðslur barnabóta 79 þúsund krónur með einu barni yngra 7 ára, en 159 þús. séu börnin tvö.

Stefnt hafði verið að því að hefja greiðslu mánaðarlegra barnabóta frá og með 1. apríl nk. þannig að þeirri ársfjórðungsgreiðslu, sem að óbreyttu yrði greidd 1. maí yrði dreift á mánuðina apríl, maí, júní og júlí.

Það þýðir að barnabæturnar myndu skila sér jafnar til fjölskyldna sem þeirra njóta á næstu fjórum mánuðum, en samanlagðar ráðstöfunartekjur þeirra í apríl og maí yrðu hins vegar nokkru minni en að óbreyttu kerfi.

Tekjulágar barnafjölskyldur myndu þannig einungis fá helming þeirra barnabóta sem þau ella hefðu fengið til og með 1. maí, eða 57 þús. kr. í stað 114 þús. kr. Í ljósi þess hversu brýnt er að barnabæturnar skili sér sem allra fyrst til rétthafa vegna þeirra greiðsluerfiðleika sem mörg íslensk heimili glíma við hefur fjármálaráðherra í samráði við ríkisstjórnina ákveðið að viðhalda óbreyttu kerfi við greiðslu barnabóta.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum