Hoppa yfir valmynd
16. febrúar 2009 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Úrræði ríkisstofnana á samdráttartímum

Morgunverðarfundur forstöðumanna og stjórnenda verður haldinn af fjármálaráðuneyti og Félagi forstöðumanna ríkisstofnana miðvikudaginn 18. febrúar á Grand Hótel Reykjavík.

Morgunverður er frá kl. 8:00 og fundur hefst 8:30 og stendur til 11:00.

Fundurinn er í boði fjármálaráðuneytis. Ekki þarf að tilkynna fyrirfram um þáttöku.

Fundurinn er ætlaður forstöðumönnum ríkisstofnana og millistjórnendum sem koma að fjármála- rekstrar- og starfsmannastjórn. Fundarstjóri er Haukur Ingibergsson formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana. Að loknum framsögum er tími fyrir spurningar og svör.

Tilgangur fundarins er að gera grein fyrir stöðu ríkissjóðs, fjalla um hvaða aðgerðir séu mögulegar í rekstri stofnana til að mæta samdrætti á fjárlögum og til hvaða úrræða forstöðumenn og helstu stjórnendur stofnana geta gripið til í rekstri við núverandi aðstæður með sérstakri áherslu á starfsmanna- og launamál.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum