Hoppa yfir valmynd
23. desember 2008 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Útgáfa ritsins Þjóðarbúskapurinn árið 2009

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 18. desember 2008 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Á árinu 2009 verður ritið Þjóðarbúskapurinn gefið út þrisvar sinnum, bæði á íslensku og ensku.

Á vetrarmánuðum verður gefin út endurskoðuð þjóðhagsspá til þriggja ára. Þessi skýrsla verður stutt, með færri töflum í viðauka og verður einungis birt á vef fjármálaráðuneytisins. Fleiri töflur verða þó uppfærðar á vef ráðuneytisins í tengslum við útgáfuna.

Í vetrarskýrslu verður þjóðhagsspáin uppfærð í ljósi ákvarðana Alþingis um fjárlög og fjáraukalög til viðbótar við nýjar upplýsingar um efnahagsþróun. Á vor- og haustmánuðum verða gefnar út ítarlegri spár með áherslu á framvindu efnahagslífsins til meðallangs tíma, eða fimm ára í senn, og ítarlegum töfluviðauka.

Haustspáin er jafnframt byggð á nýjum forsendum um ríkisfjármálin sem felast í fjárlagafrumvarpinu. Vor- og haustskýrslur eru gefnar út á prentuðu formi á íslensku og á vef fjármálaráðuneytisins á íslensku og ensku.

Útgáfuáætlun fjármálaráðuneytisins fyrir ritið Þjóðarbúskapurinn er sem hér segir fyrir árið 2009:

20. janúar 2009 Endurskoðuð þjóðhagsspá fyrir árin 2008 - 2010
12. maí 2009 Þjóðhagsspá fyrir árin 2009 - 2013
1. október 2009 Þjóðhagsspá fyrir árin 2009 - 2013



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum