Hoppa yfir valmynd
15. desember 2008 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Atvinnuleysi hefur aldrei vaxið jafn ört

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 11. desember 2008 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Atvinnulausum hefur fjölgað gríðarlega að undanförnu og ekkert lát virðist þar á enn sem komið er.

Hlutfallslegt atvinnuleysi mældist 3,3% í nóvember en var 1,9% mánuðinn áður. Í lok nóvember voru 6.350 skráðir atvinnulausir en á vefsíðu Vinnumálastofnunar í dag eru þeir 8.461. Þeim hefur því fjölgað um 260 hvern virkan dag mánaðarins.

Nú eru fleiri karlar atvinnulausir en konur en það hefur ekki gerst frá því atvinnuleysi var mest árið 2002. Í síðasta mánuði fjölgaði atvinnulausum körlum um 71% meðan konunum fjölgaði um 47%. Aukning atvinnuleysis í síðasta mánuði var heldur meiri á höfuðborgarsvæðinu (62%) en á landsbyggðinni (57%) en 62% atvinnulausra búa á fyrrnefnda svæðinu.

Fjölgun atvinnulausra erlendra ríkisborgara í síðasta mánuði var sú sama og varð á heildarfjölda atvinnulausra (60%). Þeir eru nú 15% af hópnum og atvinnuleysi meðal þeirra því eitthvað meira en meðal íslenskra ríkisborgara. Það kemur þó ekki á óvart enda hafa þeir starfað í þeim greinum þar sem búist var við mestum samdrætti. Aukning atvinnuleysis hefur verið langt umfram það sem búist hafði verið við.

Erfitt er að spá um framhald atvinnuleysisins sem og annarra þátta efnahagsframvindunnar. Svo virðist sem minni tregða sé gagnvart uppsögnum en á fyrri samdráttarskeiðum og á ástand á fjármálamarkaði efalítið sinn þátt í því. Hlutfallslegt atvinnuleysi hefur aldrei orðið hærra en 7,5% af vinnuafli í einum mánuði frá árinu 1980 en það var í janúar 1994. Það mundi jafngilda um 12.000 atvinnulausum nú.

Mannvirkjagerð er sú atvinnugrein sem flestir hafa orðið atvinnulausir í en verslun og iðnaður (þ.m.t. fiskiðnaður) koma næst á eftir. Fjölgun atvinnulausra sem koma úr byggingariðnaði var 131% í nóvember. Atvinnulausir koma úr öllum atvinnugreinum. Atvinnuleysi er sennilega komið yfir 7% í mannvirkjagerð og um 5% í samgöngum. Þrátt fyrir mikla fjölgun er það sennilega innan við 3% í verslun.

Hin mikla aukningu atvinnuleysis sem nú gengur yfir kemur mismunandi niður á aldurshópum. Skráð atvinnuleysi yngsta aldurshópsins hefur jafnan verið mjög lágt, hins vegar hefur það mælst sveiflukennt en oft mikið í vinnumarkaðskönnunum. Nú bregður svo við að það er orðið meira en í öðrum aldurshópum og það er ennþá minnst í elsta hópnum.

Fjöldi atvinnulausra í lok nóvember eftir fyrri atvinnugrein



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum