Hoppa yfir valmynd
29. ágúst 2008 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mikill aðflutningur einkennir íbúaþróunina

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 28. ágúst 2008 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Í tölum Hagstofu Íslands um mannfjölda á Íslandi kemur fram að hér bjuggu rúmlega 319 þúsund manns á miðju ári 2008.

Þetta eru tæplega 8.000 fleiri íbúar en voru hér fyrir ári síðan og er það næstmesta fjölgun íbúa á einu ári. Þessi mikla fjölgun stafar annars vegar, og að stærri hluta, af því að fjöldi aðfluttra var meiri en brottfluttra af landinu og hins vegar að fjöldi fæddra var vel umfram fjölda látinna. Frá miðju ári 2007 nemur íbúafjölgunin fyrir landið í heild um 2,5%, þar af má ætla að náttúrleg fjölgun skýri um 2.700 eða 0,9% en millilandaflutningar rúmlega 5.000 eða 1,6% fjölgun.

Miðmannfjöldi, fjölgun frá fyrra ári

Á fyrri hluta yfirstandandi árs má ætla að aðfluttir umfram brottflutta hafi verið um 4.600. Til samanburðar var nettóaðflutningur til landsins nokkru minni á sama tíma í fyrra. Miðað við tölur Vinnumálastofnunar kom ríflega helmingur aðfluttra frá hinum nýju aðildarríkjum ESB á fyrri hluta þessa árs, eða um 2.500 einstaklingar. Um 2.000 manns koma því annars staðar frá, bæðin innan og utan ESB.

Töluvert hefur verið rætt á undanförnum mánuðum að margir erlendir starfsmenn hafi farið af landi brott en ekki verið skráðir sem slíkir. Vel má vera að tölur um brottflutning séu lægri en þær ættu að vera. Það breytir þó ekki því að tölurnar um aðflutning sýna að hingað hefur komið talsverður fjöldi nýrra einstaklinga, flestir á starfsaldri.

Þótt íbúum landsins hafi fjölgað í heild er þróun ólík eftir landssvæðum. Þannig hefur fjölgað á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi en fækkað á Austurlandi og Vestfjörðum.

Íbúum landsins fjölgar þó ekki einungis af aðflutningi því mikil fjölgun fæðinga á sinn þátt. Undanfarna 12 mánuði hafa fæðst hér á landi nær 4.800 börn en látnir töldu um 1.700 manns. Ef heldur sem horfir má því búast við að náttúruleg fjölgun ársins í ár verði ein hin mesta um langt skeið.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum