Hoppa yfir valmynd
25. ágúst 2008 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Tvísköttunarviðræður hefjast við Katar og Albaníu

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 21. ágúst 2008 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Nýverið var haldinn í Reykjavík fyrsti fundur samninganefnda Íslands og Katar um gerð tvísköttunarsamnings milli landanna.

Samningagerðin komst vel á veg, þó að ýmis atriði samningsins sé enn óafgreidd. Áætlað er að næsti fundur landanna fari fram í Doha á fyrri hluta næsta árs. Vonast er til að unnt verði að ljúka samningsgerðinni á þeim fundi.

Samningaviðræður Íslands við Albaníu um gerð tvísköttunarsamnings munu hefjast hér á landi í byrjun október nk. Þá liggur fyrir að stjórnvöld í Grikklandi og Rúmeníu hafa fyrr á þessu ári fullgilt þá tvísköttunarsamninga sem gerðir voru við íslensk stjórnvöld. Þeir samningar ættu því að óbreyttu að koma til framkvæmda frá og með næstu áramótum. Nýr samningur við Bandaríkin er enn til meðferðar í bandaríska þinginu og óljóst hvort Bandaríkjamenn munu fullgilda samninginn af sinni hálfu fyrir næstu áramót.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum