Hoppa yfir valmynd
18. mars 2008 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vinnuafl í fjármálageiranum

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 13. mars 2008 - þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Uppgangur fjármálastofnana hefur verið í brennidepli undanfarin misseri en eftir því sem óróleikinn á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hefur staðið lengur hafa menn haft áhyggjur af því hvernig þær muni þróast áfram.

Íslenskar fjármálastofnanir hafa vaxið mjög undanfarin ár, bæði erlendis og hérlendis, að umfangi og mannafla. Þessi þróun hefur þó ekki staðið lengi. Einkavæðingu viðskiptabankanna var endanlega lokið snemma árs 2003 og fjöldi starfsmanna í þessum geira atvinnulífsins hafði þá farið nokkuð minnkandi um nokkurra ára skeið.

Það er í raun ekki fyrr en árið 2006 sem fjölgun starfsmanna í fjármálaþjónustu fer að verða áberandi en þá fjölgaði þeim um 11%. Árið 2007 fjölgaði þeim enn, og nú um tæp 20%. Alls töldust 8.700 manns starfandi í fjármálaþjónustu árið 2007. Það vekur athygli að frá árinu 2005 hefur körlum fjölgað um 71% meðan konum hefur fjölgað um 11%.

Fjöldi starfandi í fjármálaþjónustu og ttryggingastarfsemi



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum