Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Akstursgjald ríkisstarfsmanna-auglýsing nr. 3/2015

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald

Fyrstu 10.000 km, kr. 110,00 pr. km
Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 99,00 pr. km
Umfram 20.000 km, kr. 88,00 pr. km

Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. desember 2015. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2013 dagsett 24. maí 2013.

Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármála-ráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga. Veffangið er: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.

Reykjavík, 11. nóvember 2015

Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum