Hoppa yfir valmynd
28. maí 2021 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Hægt að skoða hvert skattarnir fara á nýjum álagningarseðli

Einstaklingar geta nú séð á myndrænan hátt hvernig sköttum sem lagðir eru á tekjur þeirra er skipt á milli ríkis og sveitarfélags og í hvaða málaflokka þeir renna. Þetta má sjá á nýjum og breyttum álagningarseðlum einstaklinga, sem eru nú aðgengilegir á vef Skattsins.

 

Breytingin er unnin að frumkvæði Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, en markmiðið er að auka gagnsæi um hvert skattgreiðslur almennings renna. Þannig fá skattgreiðendur nú yfirlit um hve háa fjárhæð þeir reiddu af hendi til heilbrigðismála, mennta- og menningarmála, samgöngumála o.s.frv., en stefnt er að því að í framtíðinni geti skiptingin orðið enn ítarlegri.

Ein mynd með heildarniðurstöðu

Á nýjum álagningarseðli kemur heildarniðurstaða álagningar fram í einni mynd og hægt er að skoða hvernig einstakar fjárhæðir í álagningunni eru reiknaðar út. Skoða þarf línuna „Til greiðslu/inneign“ til að sjá uppgjör hvers gjalddaga fyrir sig þar sem skýrt kemur fram hvort um er að ræða skuld eða inneign. Inneign er sýnd með grænum lit sem plústala og skuld með rauðum lit sem mínustala.

Barnabætur eru sérgreindar í yfirlitinu þar sem þeim er ekki skuldajafnað nema fyrirframgreiðsla þeirra hafi verið of há.

Neðst í yfirlitinu birtist skipting skattgreiðslna af tekjuskattsstofni og hvernig það hlutfall skiptist á milli ríkis og sveitarfélags. Þar er einnig að finna skiptingu á milli tekjuskatts til innheimtu og á álögðu útsvari til sveitarfélags.

Stefnt að enn auknu gagnsæi

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra:

„Það er mikilvægt að skattgreiðendur hafi sem skýrasta mynd af því hvert peningarnir renna og í hvaða hlutföllum. Við stigum stórt skref fyrir nokkrum árum, þegar fyrst var hægt að sjá skiptinguna milli skattgreiðslna til ríkisins og útsvarsgreiðslna til sveitarfélaga.

Nú göngum við skrefi lengra, en með skýrri sundurliðun á málaflokka eykst bæði aðhald þegar kemur að ráðstöfun almannafjár og á sama tíma tilfinning fólks fyrir því að þeirra framlag skipti máli. Fyrr en síðar vonast ég svo til þess að við getum gengið enn lengra, þannig að jafnvel verði hægt að skoða skiptinguna niður á einstaka stofnanir.”

Myndband Skattsins um niðurstöður álagningar

Nýr álagningarseðill Skattsins: 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum