Hoppa yfir valmynd
4. maí 2020 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Allir reikningar ríkisstofnana og ríkissjóðs orðnir rafrænir

Allir reikningar frá ríkissjóði og ríkisstofnunum eru orðnir rafrænir og gildir það frá og með 1.maí. Markmiðið er að lækka viðskiptakostnað allra aðila, nútímavæða viðskiptaumhverfi ríkisins með auknu framboði stafrænnar þjónustu og framfylgja umhverfissjónarmiðum.

Fjársýslan og ríkisstofnanir sjá um að senda reikningana út til viðskiptavina. Þeir eru aðgengilegir í pósthólfinu á Ísland.is. Jafnframt er í boði að fá reikninga senda rafrænt í gegnum skeytaþjónustu. Reikningar eða greiðsluseðla sem verða rafrænir varða t.d. þing- og sveitarsjóðsgjöld, bifreiðagjöld, þungaskatt, sektir, komugjöld og fleira.

Áætlað er að um 200 m.kr. sparist á ári með því að nýta rafræna reikninga, m.a. með lækkun prentkostnaðar og póstburðargjalda.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum