Hoppa yfir valmynd
15. apríl 2019 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fjármála- og efnahagsráðherra aðili að alþjóðlegum loftslagsvettvangi

Samstarfsvettvangur fjármálaráðherra hefur undirritað yfirlýsingu um aðgerðir í loftslagsmálum. - mynd

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra hefur undirritað yfirlýsingu um alþjóðlegan samstarfsvettvang fjármálaráðherra um aðgerðir í loftslagsmálum. Fyrsti fundur vettvangsins var haldinn um helgina í tengslum við vorfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans.

Í aðildinni felst meðal annars viðurkenning á þeirri ógn sem steðjar að efnahagskerfum heimsins, samfélögum og umhverfinu, sem felur í sér áhættu þegar kemur að efnahagslegum vexti og þjóðhagslegum stöðugleika. Fjármálaráðherrarnir telja að í krafti embættis síns séu þeir í lykilstöðu til að hraða umbreytingum til að draga úr losun og auka kolefnisbindingu og skapa umhverfisvænni hagkerfi með stefnumótun á sviði þjóðhags- og ríkisfjármála og, þar sem það á við, með reglusetningu.

Vettvangi fjármálaráðherranna er ætlað að gefa þeim tækifæri til að deila reynslu og sérþekkingu hver með öðrum og hvetja til sameiginlegs skilnings á stefnumótun og framkvæmd þegar kemur að aðgerðum í loftslagsmálum.

Ísland er eitt 22 ríkja sem hefur skrifað undir yfirlýsinguna en fundinn um helgina sátu fulltrúar um 50 ríkja.


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum