Almennar umbætur
Almennar umbætur í ríkisrekstri
Almennar umbætur í ríkisrekstri fela sér breytingar á innri og ytri þáttum starfsemi ríkisins. Í meginatriðum er tilgangurinn með umbótum tvíþættur:
- að bæta verklag stjórnsýslunnar og gera hana skilvirkari og
- að bæta kerfislega þætti stjórnsýslunnar, eins og almenna þjónustu, réttindamál og fleira sem snýr að almenningi, viðskiptavinum, atvinnulífi o.s.frv.
Markmiðið með umbótum er að gera þjónustu hins opinbera við almenning og atvinnulíf eins góða og kostur er með þeim fjármunum sem til ráðstöfunar eru hverju sinni.
Umbótaverkefni geta t.a.m. falið í sér verkefni um: almenna hagræðingu, endurskipulagningu verkefna, endurskipulagningu stofnana, nýsköpun í opinberri þjónustu, rafræna stjórnsýslu, framþróun í upplýsingatæknimálum o.fl.
