Norræn starfsmannaskipti
Efnisyfirlit
Umsóknarfrestur um styrk til dvalar á næsta ári er til 30. nóvember næst komandi. Umsóknum og fyrirspurnum skal beina til:
Ástu Láru Leósdóttur, starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins,
Arnarhváli við Lindargötu, 150 Reykjavík.
Sími: 545-9340, bréfasími: 562-8280, tölvupóstur: asta.lara.leosdottir@fjr.stjr.is
Inngangur
Með það að markmiði að auka norræna samvinnu hefur Norræna ráðherranefndin haft forgöngu um að gera ríkisstarfsmönnum á Norðurlöndum kleift að stunda tímabundið störf eða nám á starfsvettvangi sínum í ríkisstofnunum annars staðar á Norðurlöndum.
Tilgangurinn er að gefa ríkisstarfsmönnum tækifæri til að auka þekkingu sína á stjórnun, stjórnsýslu og löggjöf annars staðar á Norðurlöndum. Þetta fyrirkomulag er ekki bundið við að skiptin séu gagnkvæm en útilokar það ekki heldur.
Almenn skilyrði
Skiptin eru ekki bundin við sérstök störf eða starfshópa. Starfið eða námið verður þó að vera í faglegum tengslum við verksvið umsækjanda og teljast bæði stofnun og starfsmanni til gagns. Dvölin skal skemmst vera 1 mánuður og lengst 12 mánuðir og þarf helst að vera öll innan sama almanaksárs.
Árleg fjárveiting ráðherranefndarinnar sem skiptist á milli einstakra landa er veitt til að greiða ferðakostnað, kostnað vegna húsnæðis o.fl.
Þeirri fjárhæð sem til ráðstöfunar er fyrir Ísland er skipt niður á styrkþega. Vegna takmarkaðrar fjárveitingar getur þurft að velja úr umsóknum eða takmarka dvalartíma hvers og eins.
Á dvalartímanum nýtur starfsmaður venjulegra mánaðarlauna frá ráðuneyti/stofnun í heimalandinu, þar með greiðslna í lífeyrissjóð og hækkunar starfsaldurs, eins og um órofinn starfstíma væri að ræða. Þetta er ein af forsendum þess að starfsmaðurinn hljóti styrkveitingu.
Styrkur
Á vegum ráðherranefndarinnar er greiddur styrkur og er hann nú jafngildi 9.000 danskra króna á mánuði.
Ráðherranefndin greiðir ennfremur ferðakostnað til og frá dvalarstað. Lögð er áhersla á að leitað sé ódýrasta fargjalds sem kostur er á. Velji styrkþegi að notfæra sér dýrara fargjald greiðir hann sjálfur mismuninn.
Dvelji styrkþegi 6 mánuði eða lengur getur hann einnig fengið endurgreiddan ferðakostnað fjölskyldu sinnar, ef hún flytur með, ennfremur hugsanlegan kostnað vegna flutninga á nauðsynlegri búslóð.
Mögulegt er að fá greidda eina heimferð fyrir styrkþega og fjölskyldu hans meðan á dvölinni stendur, sé dvalið 6 mánuði eða lengur.
Endurgeiðsla útgjalda
Gert er ráð fyrir að hlutaðeigandi ráðuneyti/stofnun greiði til bráðabirgða öll útgjöld vegna styrkveitingarinnar þ.m.t. dvalarstyrk og ferðakostnað en ráðherranefndin endurgreiði síðan útgjöldin. Gögn vegna endurgreiðslna skal senda fjármálaráðuneytinu.
Umsóknir
Umsókn um styrk sendist til fjármálaráðuneytisins. Í umsókn skal eftirfarandi koma fram:
- Nafn, kennitala og heimili umsækjanda.
- Starfsheiti, vinnustaður og starfstími hjá þeirri stofnun sem starfsmaður starfar hjá.
- Starfssvið eða verksvið.
- Menntun og fyrri störf.
- Heiti stofnunar sem samkomulag hefur verið gert við um skiptidvöl, hvenær áætlað er að fara og til hve langs tíma sótt er um.
- Hverjir umsækjandi áætlar að fari með honum úr fjölskyldu hans ef um lengri dvöl er að ræða.
- Hvernig dvölin er skipulögð.
- Hvort umsækjandi hafi fengið eða eigi von á öðrum styrkjum eða aðstoð í sama skyni og um hve háa fjárhæð er að ræða.
- Aðrar upplýsingar sem máli skipta.
Umsókn skal fylgja umsögn ráðuneytis/stofnunar þar sem m.a. þess sé getið að um launað leyfi sé að ræða.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember ár hvert vegna skiptidvalar á næsta almanaksári.
Hvernig stofnað er til skiptidvalar
Gert er ráð fyrir að stofnað sé til skiptidvalar með fulltingi ráðuneytis/stofnunar umsækjenda og að stofnun veiti starfsmanni aðstoð og leiðbeiningar eins og kostur er varðandi skiptin og dvölina. Gert er ráð fyrir að samkomulag hafi náðst við væntanlega dvalarstofnun áður en umsókn er send til fjármálaráðuneytisins.
Úthlutun styrkja
Við úthlutun styrkja er lögð áhersla á:
- Að umsækjandi hafi nokkuð langan þjónustualdur hjá ríkinu.
- Að um sé að ræða fagleg tengsl við starf styrkþegans sem bæði er til gagns fyrir hann og stofnunina sem hann vinnur hjá.
Skyldur styrkþegans
Styrkþeginn hefur vinnuskyldu á meðan á skiptidvölinni stendur. Jafnframt verður hann að fylgja reglum þeirrar stofnunar sem dvalið er hjá um vinnutíma og sinna þeirri vinnu sem honum er falin. Þetta gildir jafnframt um allar þær reglur sem gilda á staðnum svo sem þagnarskyldu o.fl. Sé þess krafist, skal styrkþeginn undirrita reglur þeirrar stofnunar, sem dvalið er hjá, um þagnarskyldu o.fl.
Styrkþegi skal endurgreiða styrkinn ef:
- Vinnuskyldu er ekki sinnt.
- Greiddur styrkur er ekki notaður í samræmi við áætlun.
- Kostnaður er greiddur með öðrum styrkjum.
- Skýrslu er ekki skilað.
Skýrsla styrkþegans
Innan tveggja mánaða eftir heimkomuna skal styrkþegi senda skýrslu til fjármálaráðuneytisins um dvölina. Úrdráttur úr skýrslum styrkþega er sendur til Norrænu ráðherranefndarinnar en þar er safnað saman upplýsingum frá öllum styrkþegum og lagt sameiginlegt mat á ávinninginn af starfsmannaskiptunum. Vegna þessa þurfa eftirfarandi upplýsingar að koma fram í inngangi að skýrslum styrkþega. Hægt er að nota meðfylgjandi eyðublað við skýrslugerðina.
- Nafn.
- Kyn
- Stafsheiti.
- Núverandi vinnustaður/stofnun.
- Nafn vinnustaðar/stofnunar sem dvalið var hjá.
- Tímabil sem dvalið var erlendis.
- Hvenær vaknaði áhugi þinn á starfsmannskiptunum?
- Hvað var það sérstaklega sem vakti þennan áhuga?
- Hvað fannst þér um skipulag dvalarinnar (þ.e upplýsingar, samskipti við stofnun, ráðuneyti)?
- Hvernig gekk þér að finna húsnæði?
- Hver er reynsla þín að lengd dvalarinnar, var hún of löng, hæfileg eða of stutt?
- Hver var aðalávinningur þinn af starfsmanaskiptunum út frá starfsvettvangi þínum?
- Hvaða þekkingu/reynslu öðlaðist þú á meðan á dvöl stóð og hverju gast þú miðlað?
- Hvernig hafa starfsmannskiptin breytt sýn á þinni á núverandi starf og vinnustað/stofnun?
- Hver var helsti ávinningur þinn af samvinunni með nýjum starfsfélögum meðan á dvöl stóð (tengslanet, formleg/ óformleg samskipti)?
- Hvaða áhrif hafði dvölin á þig persónulega?
- Hver er þinn helsti ávinningur af starfsmannaskiptunum?
Í skýrslunum skulu ennfremur vera lýsingar á þeirri reynslu sem styrkþeginn öðlaðist.
Dvalarrof
Sé dvölin rofin skal fjármálaráðuneytinu tafarlaust tilkynnt um það.
Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar um skiptidvöl norrænna ríkisstarfsmanna er að finna á vef Norrænu ráðherranefndarinnar.
Einnig má lesa skýrslu um verkefnið sem unnin var af Nordisk Ministerråd til þess að leggja mat á ávinninginn af starfsmannaskiptunum, hvernig þau hafi komið að notum fyrir styrkþegana, fyrir stofnanirnar sem sendu þá svo og stofnanirnar sem hafa tekið á móti styrkþegum frá öðrum löndum.
Skýrslur fyrri styrkþega
Skýrslur styrkþega 2009
- Elín Sigrún Jónsdóttir, dómstólaráði. Skýrslan er bæði á íslensku og norsku (PDF, 16 og 18 KB).
- Hallgrímur Indriðason hjá Skov- og naturstyrelsen í Danmörku (PDF 91,9 KB).
- Ingibergur Sigurðsson í Fiskeridirektoratet í Noregi (PDF 1,01 MB).
Skýrslur fyrri ára
- Skýrsla styrkþega frá 2008 (4,05 MB)
- Skýrsla styrkþega frá 2008 (PDF 5,37 MB)
- Skýrsla styrkþega frá 2004 (PDF 125K)
- Skýrsla styrkþega frá 2006 (PDF 1.253K)
- Samantekt styrkþega
