Breytingar á störfum og verksviði

Meginskylda hvers starfsmanns í þjónustu ríkisins er, líkt og starfsmanns á almennum vinnumarkaði, að mæta til vinnu og sinna starfi því sem hann var ráðinn til. Starfsmaður getur þó ekki vænst þess að eðli og inntak þeirra verka sem honum eru falinn í upphafi starfs, haldist óbreytt út starfstíma hans.

Starfið kann að þróast og taka meiri eða minni breytingum eftir því sem þekking og færni starfsmanns eykst (starfsþróun). Aðrar ástæður kunna einnig að leiða til breytinga störfum og verksviði, svo sem nýtt skipulag og/eða breyttar þarfir stofnunar.

Starfsmönnum, jafnt embættismönnum sem öðrum starfsmönnum, er skylt að hlíta breytingum á störfum sínum og verksviði frá því að þeir tóku við störfum. Sjá nánar 19. gr. starfsmannalaga.

Útgefið efni

Dreifibréf um breytingar á störfum og verksviði

Spurt og svarað um breytingar á störfum og verksviði

Greinar úr fréttabréfi fyrir stjórnendur ríkisstofnana:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica