Spurt er um lengingu orlofs skv. kjarasamningi, þ.e. annars vegar töku orlofs og hins vegar orlofsuppgjör vegna starfsloka.
Sumorlofstímabilið er breytilegt eftir kjarasamningum. Það er oftast frá 2. maí til 15. september eða 15. maí til 30. september.
Sé orlof tekið utan sumarorlofstímabils skal sá hluti orlofs lengjast, þ.e. yfirleitt um 1/4. Til slíkrar lengingar kemur jafnvel í þeim tilvikum þegar eingöngu er verið að koma til móts við óskir starfsmanns. Lengingin er þó háð því að um ósk yfirmanns sé að ræða þegar í hlut eiga embættismenn er heyra undir kjaranefnd og starfsmenn er taka laun skv. kjarasamningum við önnur félög en stéttarfélög opinberra starfsmanna.
Lenging reiknast ekki á orlof sem er tekið fyrirfram að ósk starfsmanns, þ.e. orlof sem er áunnið en ógjaldfallið.
Lenging reiknast ekki á orlof þegar það er greitt við starfslok (orlofsuppgjör). Það breytir engu þótt starfslokin eigi sér stað utan sumarorlofstímabils.
(Birt mars 2002-gós)
