Úrræði ríkisstofnana á samdráttartímum
Á þessari síðu er, að svo stöddu, að finna glærur og erindi frá tveimur morgunverðarfundum sem haldnir hafa verið vegna úrræða stofnana á samdráttartímum.
Fundur um lækkun ríkisútgjalda hjá opinberum stofnunum, 3. september 2009
Á fundinum voru kynntar og ræddar leiðir til að lækka útgjöld vegna reksturs opinberra stofnana. Fundurinn var ætlaður forstöðumönnum stofnana auk þess sem lagt var til að þeir tækju með sér fjármála, - rekstrar-, og starfsmannastjóra. Einnig voru ráðuneytisstjórar og rekstrarstjórar ráðuneyta boðaðir á fundinn.
Fundargerð, erindi fyrirlesara og upptaka af fundinum eru aðgengileg á vef Félags forstöðumanna ríkisstofnana.
Úrræði ríkisstofnana á samdráttartímum, 18. febrúar 2009
Morgunverðarfundur forstöðumanna og stjórnenda var haldinn af fjármálaráðuneyti og Félagi forstöðumanna ríkisstofnana miðvikudaginn 18. febrúar 2009 á Grand Hótel Reykjavík.
Fundurinn var ætlaður forstöðumönnum ríkisstofnana og millistjórnendum sem koma að fjármála- rekstrar- og starfsmannastjórn. Fundarstjóri var Haukur Ingibergsson formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana. Að loknum framsögum var tími fyrir spurningar og svör.
Tilgangur fundarins var að gera grein fyrir stöðu ríkissjóðs, fjalla um hvaða aðgerðir séu mögulegar í rekstri stofnana til að mæta samdrætti á fjárlögum og til hvaða úrræða forstöðumenn og helstu stjórnendur stofnana geta gripið til í rekstri við núverandi aðstæður með sérstakri áherslu á starfsmanna- og launamál.
Dagskrá fundarins og erindi sem haldin voru eru aðgengileg hér fyrir neðan.
- Setning: Steingrímur J Sigfússon fjármálaráðherra
- Staða ríkissjóðs og stefna í ríkisbúskapnum næstu ár: Indriði H. Þorláksson settur ráðuneytisstjóri.
- Rekstur, stefnumótun og forgangsröðun (PDF 63 KB): Arnar Másson stjórnmálafræðingur, fjárreiðu- og eignaskrifstofu.
- Lagarammi stjórnsýslu- og starfsmannalaga (PDF 125 KB): Björn Rögnvaldsson lögfræðingur, starfsmannaskrifstofu.
- Mögulegar breytingar á launum starfsmanna (PDF 212 KB): Guðmundur H. Guðmundsson sérfræðingur, starfsmannaskrifstofu.
- Kjara- og stofnanasamningar, skorður og sveigjanleiki (PDF 99 KB): Gunnar Björnsson skrifstofustjóri, starfsmannaskrifstofu.
- Spurningar og svör, inngangur (PDF88 KB): Ásta Lára Leósdóttir sérfræðingur, starfsmannaskrifstofu.
