Nefnd vegna lausnar um stundarsakir

- Nefnd skv. 27. gr. stml.

Sérstök nefnd sérfróðra manna um stjórnsýslu hefur það hlutverk að fjalla um mál embættismanna sem vikið er frá störfum um stundarsakir.

Meginreglan er sú að embættismanni verður ekki vikið frá að fullu nema því aðeins að honum hafi fyrst verið veitt lausn um stundarsakir og mál hans verið afgreitt hjá nefndinni.

Nefnd þessi starfar samkvæmt 27. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Hún er oft kölluð nefnd samkvæmt 27. gr. stml.

Fjármálaráðherra skipar nefndina, þar af formann og varaformann til fjögurra ára í senn. Aðrir nefndarmenn eru skipaðir í nefndina í hvert sinn sem mál kemur upp. Annar þeirra samkvæmt tilnefningu þess ráðherra sem í hlut á en hinn af samtökum ríkisstarfsmanna sameiginlega.

Fjármálaráðherra hefur skipað Kristínu Benediktdsóttur, hdl. formann nefndarinnar og Hafstein Þór Hauksson, lögfræðing varaformann nefndarinnar. Skipunin gildir til 30. nóvember 2014.


Álitsgerðir og skýrslur



Nefnd samkvæmt 27. gr. stml. hefur sett sérstakar starfsreglur


Þetta vefsvæði byggir á Eplica