Dómar


Á ári hverju kemur nokkur fjöldi ágreingsmála upp í tengslum við starfsmannamál hjá ríkinu og stofnunum þess sem leiða þarf til lykta fyrir dómstólum.

Embætti ríkislögmanns sér jafnan um rekstur þessara dómsmála en undirbúningur þeirra er yfirleitt í höndum starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytis. Þá er oft leitað til hlutaðeigandi stofnunar eftir frekari skýringum, einkum varðandi atvik máls, og stundunum hlutaðeigandi ráðuneytis, svo sem varðandi túlkun á sérákvæðum laga og annarra settra reglna.

Fjármálaráðherra fer jafnan með aðild að starfsmannamálum sem fara fyrir dómstóla, enda er honum yfirleitt stefnt fyrir hönd íslenska ríkisins. Frá því eru þó undantekningar, t.d. þegar mál eru höfðuð til ógildingar á áminningu en þá er forstöðumanni hlutaðeigandi stofnunar stefnt. Í slíkum tilvikum er hægt að leita eftir aðstoð frá embætti ríkislögmanns en með milligöngu starfsmannaskrifstofu fjármálaráðueytis.

Stöku dæmi eru um opinbermál þar sem ákært er fyrir brot sem tengjast starfi viðkomandi í þjónustu ríkisins og eftir atvikum ákært fyrir brot í opinberu starfi skv. 14. kafla almennra hegningarlaga. Rekstur slíkra mála heyrir undir embætti ríkissaksóknara eða aðra hafndhafa ákæruvalds.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica